Morgunblaðið - 12.12.2000, Page 84

Morgunblaðið - 12.12.2000, Page 84
44 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ í dag er þriðjudagur 12. desember, 347. dagur ársins 2000. Orð dagsins: Og ég veit að boðorð hans er eilíft líf. Það sem ég tala, það tala ég því eins og faðirinn hefur sagt mér. (J6h. 12,50.) Skipin Reykjavíkurhöfn: Bakkafoss, Dettifoss, Helgafell og Haukur koma í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Sel- foss og Ásgrfmur Hall- •* dórsson koma í dag. Fréttir Bökatíðindi 2000 Númer þriðjudagsins 12. desember er 11310. Mæðrastyrksnefnd Kópavogs. Hamraborg 20a. Fataúthlutun kl. 17-18. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9 búta- saumur og handavinna, kl. 9-12 bókband, kl. 13 opin smíðastofan og brids, kl. 10 íslands- banki opinn, kl. 13.30 opið hús spilað, teflt o.fl., kl. 9 hár- og fótsnyrtistofur opnar. Bólstaðarhlið 43. KI. 8 hárgreiðsla, kl. 8.30 böðun, kl. 9-9.45 leik- fimi, kl. 9-16 handa- vinna og fótaaðgerðir, kl. 9-12 tréskurður, kl. 10 sund, kl. 13 leirlist. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18-20. Kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10 sam- ” verustund, kl. 14 félags- visL Fólagsstarf aldraðra, Lönguhh'ð 3. KL 8 böð- un, kl. 9.30 hjúkr- unarfræðingur á staðn- um, ki. 10 hársnyrting, kl. 13 fóndur og handa- vinna. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Aðventukaffi í Kirkjulundi 12. desemb- er kl. 15. Spilað í Kirkjulundi 12. des. kl. 13.30 Lögreglan í Hafn- arfirði býður öldruðum í Garðabæ í skoðunarferð ’14. des. Farið frá Kirkjulundi kl. 13. Félag eldri borgara í Reykjavík, Asgarði, Glæsibæ. Kaffistofan er <■ opin virka daga kl. 10- 13. Matur í hádeginu. Skák kl. 13.30 í dag. Al- kort fellur niður en hefst aftur eftir áramót. Miðvikudagur: Göngu- Hrólfar fara í létta göngu frá Ásgarði, Glæsibæ, kl. 10. Jóla- ferð á Suðurnesin laug- ardaginn 16. des. Upp- lýst Bergið í Keflavík skoðað. Ekið um Kefla- vík, Sandgerði og Garð. Súkkulaði og meðlæti á Ránni, Keflavík. Brott- ■^ JÍfór frá Ásgarði Glæsibæ kl. 15. Æskilegt að fólk skrái sig sem fyrst Bláa lónið og Þingvalla- leið-Grindavík bjóða eldri borgurum í Bláa lónið á hálfvirði mánu- dag til fimmtudags. Farið er frá Laug- ardalshöll kl. 13, Hlemmi kl. 13.10 og BSÍ kl. 13.30. Breyting hefur orðið á viðtalstíma Silfurlínunnar. Opið verður á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 10-12 f.h. Ath. af- greiðslutími skrifstofu FEB er frá kl. 10-16. Uppl. á skrifstofu FÉB í síma 588 2111 kl. 10- 16. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9-16.30 vinnustofur opnar, kl. 13 boccia. Miðvikud. 13. des. er ár- leg ferð með lögregl- unni, Ohufélagið hf. ESSO býður akstur, m.a. Laugarneskirkja heimsótt, umsjón sr. Bjarni Karlsson, öku- ferð um Sundahöfn og nýja bryggjuhverfið í Grafarvogi. Kaffi í boði íslandsbanka í Lóuhól- um í Ásgarði í Glæsibæ. Mæting í Gerðubergi kl. 12.30. Skráning hafin. Jólahelgistund verður fimmtudaginn 14. des. kl. 14. Umsjón sr. Hreinn Hjartarson og Lilja G. Hallgrímsdóttir djákni, hugvekja; Guð- rún Ásmundsdóttir leik- kona. Metta Helgadóttir og Ragnheiður Guð- mundsdóttir syngja tví- söng. Lenka Mátéová leikur á píanó. Túlkun á táknmáli, sr. Miako Þórðarson. Hátíðarveit- ingar í kaffihúsi Gerðu- bergs. Á eftdr koma börn úr leikskólanum Hraunborg og syngja jólalög. Allir velkomnir. Veitingar í kaffihúsi Gerðubergs. Allar upp- lýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Leikfimi kl. 9.05, kl. 9.50 og kl. 10.45, kl. 9.30 glerlist, handa- vinnustofa opin, leið- beinandi á staðnum frá kl. 10-17, kl. 14 boccia, þriðjudagsganga fer frá Gjábakka kl. 14, kl. 17 dans og myndlist. Að- ventukaffi verður í Gjá- bakka fimmtudaginn 14. des. kl. 14. Dagskrá: Jóiahugleiðing á að- ventu, söngur og upp- lestur. Heitt súkkulaði m/rjóma og kökuhlað- borð. Allir velkomnir. Jólahlaðborð verður föstudaginn 15. des kl. 18. Hugleiðingu flytur sr. Gunnar Sig- urjónsson. Einsöngur Ólafur Kjartan Sigurðs- son, stjómandi Jónas Ingimundarson, Samkór Kópavogs syngur nokk- ur lög. Dansað. Skrán- ing fyrir 13. des. Miðar verða seldir 14. og 15. des. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið kl. 9-17. Mat- arþjónusta á þriðjud. og föstud., panta þarf fyrir kl. 10 sömu daga, kl. 9 postulínsmálun, kl. 10 jóga, handavinnustofan opin kl.13-16, kl. 18 línudans. Fótaaðgerða- stofan er opin virka daga. Aðventukaffi verður miðvikudaginn 13. des. kl. 15. Sr. íris Kristjánsdóttir flytur hugvekju. Söngur og upplestur. Heitt súkkul- aði með rjóma og köku- hlaðborð. Allir velkomn- ir. Hvassaleiti 56-58. Kl. 9 böðun, fótaaðgerðir og leikfimi, kl. 9.45 banka- þjónusta, kl. 13 handa- vinna og hárgreiðsla. Hraunbær 105. Kl. 9- 16.30 postulínsmálun, kl. 9-17 fótaaðgerðir, kl. 9-12 glerskurður, kl. 9.45 boccia, kl. 11 leik- fimi, kl. 12.15 versl- unarferð í Bónus, kl. 13-16.30 myndlist, kl. 13-17 hárgreiðsla. Hæðargarður 31. Kl. 9- 16.30 opin vinnustofa, postulínsmálun, kl. 9-17 hárgreiðsla, kl. 10 leik- fimi, kl. 12.45 Bón- usferð. Norðurbrún 1. Kl. 9-16 fótaaðgerðastofan opin, kl. 9-17 hárgreiðsla, kl. 10-11 boccia, kl. 9-16.45 opin handavinnustofan, tréskurður. Vesturgata 7. Kl. 9 fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9.15-12 bútasaumur, kl. 9.15- 15.30 handavinna, kl. 11 leikfimi, kl. 13 búta- saumur, kl. 13.30 félags- vist. Vitatorg. Kl. 9 smiðjan og hárgreiðsla, kl. 9.30 glerskurður, myndlist og morgunstund, kl. 10 leikfimi og fótaaðgerðir, kl. 11 boccia, kl. 13 handmennt og keramik, kl. 14 félagsvist. Háteigskirkja. Opið hús á morgun fyrir 60 ára og eldri í safnaðarheim- ili Háteigskirkju frá kl. 10- 16. Kl. 10-11 morg- unstund með Þórdísi, kl 11- 16 samverustund, ýmislegt á prjónunum. Súpa og brauð í hádeg- inu, kaffi og meðlæti kl. 15. Ath. takið með ykk- ur handavinnu og inniskó. Vonumst til að sjá sem flesta. Gengið inn Viðeyjarmegin. Bridsdeild FEBK Gjá- bakka. Spilað í kvöld kl. 19. Allir eldri borgarar velkomnir. Félag ábyrgra feðra heldur fund í Shell- húsinu, Skerjafirði, á miðvikudögum kl. 20, svarað í síma 552 6644 á fundartíma. ÍAK. íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leik- fimi kl. 11.20 í Digra- neskirkju. Eineltissamtökin halda fundi á Túngötu 7 á þriðjudögum kl. 20. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra. Leik- fimi í Bláa salnum, Laugardalshöll, kl. 12. Sinawik í Reykjavík heldur jólafund í kvöld kl. 20 í Sunnusal Hótels Sögu. Hallgrímskirkja, eldri borgarar. Opið hús á morgun kl. 14-16, gest- ur Vilborg Dagbjarts- dóttir kennari. Bflferð fyrir þá sem þess óska. Upplýsingar veitir Dag- björt í síma 510 1034. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Brids og saumar kl. 13:30. A morgun býður lögreglan í skoð- unarferð í Nesstofu og kaffi í Kaplakrika. Rút- ur frá Hraunseli, Höfn og Hjallabraut 33 kl. 13. A fimmtudag verður op- ið hús, jólafundur kl. 14. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni I, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjóm: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 5691222, auglýsingar 5691110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 6691116. NETFANG: RIT- ÍSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 1.900 kr. 'á niánuði innáiilands. f lausasölu 150 kr. eintakið. VELVAKAJVDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Ríkissjón- varpið 2 NÚ loksins hefur farið af stað umræða um réttmæti þess að ríkissjónvarpið/út- varpið sé rekið í núverandi formi og fagna ég því en það er ekki nóg að það sé farin af stað umræða. Ef maður skýtur á gæs og særir hana ber manni að skjóta aftur á hana og fella hana svo hún drepist ekki bara einhvers staðar úti á sjó eða landi. Alþingi verð- ur að taka föstum tökum á þessu máli og Ijúka því. Það eru í raun bara tvær leiðir færar. Annars vegar að afnema afnotagjöldin í núverandi formi og setja á nefskatt Þá færi rekstur sjónvarpsins bara inn í hinn almenna skatt og verður borgað þannig og það deil- ist þá jafnt á alla skattborg- ara en ekki eins og nú þar sem einstaklingur borgar jafnmikið og 5-7 manna fjölskyldur. Hins vegar er að ríkið selji ríkissjónvarpið/út- varpið og nái þá í tekjur fyrir sig og einhver nýr kaupandi fer í að reka nýja stöð. Þá þyrfti hann að koma upp afruglarakerfi eða þá að hann myndi reka stöðina með auglýsingum. Það yrði alla vegana þannig fyrir hinn almenna borgara þessa Iands að hann fengi að ráða hvort hann vildi borga afnotagjald til þeirr- ar stöðvar eða ekki, eða það myndi í það minnsta minnka gjaldið á haus ef það væri farið í nefskatts- kerfið. Það er raunverulega til þriðja leiðin sem nú hefur verið við lýði allnokkuð lengi að hunsa þetta mál og láta óréttlætið halda áfram og ég yrði þá neyddur til að borga 1 milljón 260 þúsund til Ríkissjónvarpsins fyrir ekki neitt, nái ég því að verða 80 ára. Nei, við landsmenn eig- um rétt á að það sé gert eitthvað í þessu máli. Þeir sem eru hlynntir ríkssjón- varpinu geta þá bara borg- að því afnotagjöld en fyrir okkur hin sem eru ekki hlynnt þvi er þetta agalegt mál. Hvað svo með alla út- lendingana sem eru í sí- auknum mæli að flytja til landsins? Þeir eru skyldug- ir að borga afnotagjald til ríkssjónvarpsins, sem segir sig vera með mikið af ís- lensku efni, og þeir skilja ekkert í því. Hvers eiga þeir að gjalda? Jú, þeir sem fengu sér sjónvarpstæki skulu borga fyrir það lögum samkvæmt. Þvílíktkjaft... Nei, það er löngu tíma- bært að tekið sé á þessu máli. Ég var að skoða dagblað- ið núna um daginn og þar er grein um Ragnheiði El- ínu Clausen og RÚV. Þar stendur: „Ragnheiður er treg til þess að ræða í smá- atriðum hver tildrög þess voru að hún hætti nokkuð skyndilega hjá RÚV og fór yfir til keppinautarins.“ Það er rétt að Ragnheiður hætti hjá RÚV og byrjaði hjá Stöð 2 en getur Stöð 2 talist keppinautur RÚV? Stöð 2 þarf að afla sér áskrifenda en RÚV þarf þess ekki, hún bara fær þá í hendurnar eigi þeir sjón- varpstæki! Það er eitthvað bogið við þetta. Ásgeir Aðalsteins. Kóngar og drottningar góðærisins VENJULEGUR borgari á gangi í miðbæ Reykjavík- ur, mætir dömu á 30 cm hælum og í pels. Hann get- ur ekki annað en horft á eftir henni. Þá sér hann að hún er að príla upp í Land- cruiser jeppa á 60" blöðr- um. Þá datt borgaranum í hug að það skyldi þó ekki vera að borgarstjóri þurfi að setja lyftur á gangstétt- ar, svo hægt sé að lyfta kóngum og drottningum góðærisins í hásæti sín. Segið svo að það sé ekki góðæri? Borgari. Gullfallegt almanak ÉG get ekki orða bundist. Ég var að fá í hendurnar gullfallegt almanak fyrir árið 2001 og mig langar til að hrósa því. Almanakið er gefið út af Sveinssafni í Trönuhrauni í Hafnarfirði. Það eru þrír synir Sveins heitins Björnssonar list- málara sem eiga veg og vanda af þessu fallega almanaki. Þessu almanaki er skipt í þrjá hluta og spannar list- feril föður þeirra. Myndirnar, sem eru á almanakinu, eru einstak- lega vel valdar, það eru skýringar með hverri mynd og það er prentað á fallegan pappír. Synirnir mega vera ákaflega stoltir af þessu framtaki. Jón S. Dýrahald Týnd hryssa í OKTÓBER sl. tapaðist frá Kaldaðarnesi í Flóa móálótt 5 vetra hryssa með markinu gat hægra. Einnig er hún örmerkt. Hún er hálftamin og gæf. Þeir sem gefið gætu upp- lýsingar vinsamlega hring- ið í síma 551-5045 eða 867- 0174. Krossgáta LÁRÉTT: I mannsnafn, 4 snæða, 7 duttu, 8 laghent, 9 tónn, II predikun, 13 at, 14 tunna, 15 dýraríki, 17 ágeng, 20 hugsvölun, 22 kirtill, 23 hrósar, 24 un- um við, 25 gyðju. LÓÐRÉTT; 1 legubekkir, 2 vesælt, 3 sleit, 4 kropps, 5 vagga, 6 korns, 10 bleytukrap, 12 keyra, 13 kona Þórs, 15 loðskinns, 16 minnst á, 18 skottið, 19 ástfólgnar, 20 guðhrædd, 21 belti. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 ljúflyndi, 8 padda, 9 Ingvi, 10 men, 11 kasti, 13 nauts, 15 hroll, 18 kalla, 21 úti, 22 rýmka, 23 reynd, 24 brennandi. Lóðrétt: 2 Júdas, 3 frami, 4 ylinn, 5 duggu, 6 spik, 7 viss, 12 tel, 14 ala, 15 héri, 16 ormur, 17 lúann, 18 kirna, 19 leynd, 20 alda. Víkverji skrifar... TÍÐARFARIÐ í vetur hefur ver- ið ótrúlega gott, ekki síst í syðstu sveitum landsins, en þar hef- ur ekki snjóað í byggð það sem af er vetri. Jafnvel þykjast menn sjá tún grænka eða að minnsta kosti græn strá stinga sér upp úr sin- unni. Víkverji dagsins var einmitt í löngu gönguferðinni sem hann fer vikulega, var að dásama veðrið og hugsa um hlýjuna í Mýrdalnum þegar hann var óþyrmilega minntur á árstímann. Hann rann á rassinn. Þótt hlýtt hafi verið i veðri und- anfarna daga er enn víða launhált og á gönguferð sinni þennan daginn kynntist Víkverji gangbrautum og gangstéttum í sinni fjölbreyttustu mynd, allt frá auðum stígum til glærasvells. Þótt reynt væri að ganga varlega gleymdist stundum hvað undir býr og þá gat þurft að grípa til ballettdansspora sem Vík- verji vissi ekki fyrr að hann kynni. En allt fór vel, ekkert beinbrot og aðeins sár afturendi. XXX VÍKVERJI kom sér upp þeirri venju að fara í eina langa gönguferð í viku hverri í sérstöku átaki í vor og hefur reynt að við- halda henni. Ekki veitir af hreyf- ingunni. Með því að bæta tveimur jafnfljótum við vopnabúrið sitt, eins og þeir taka til orða sem lýsa NBA- boltanum á Sýn, í stað þess að nota eingöngu einkabíl og strætisvagn, hefur hann kynnst umhverfinu í borginni á alveg nýjan hátt. Mað- urinn er íhaldssamur og fer oft sömu leiðina en einnig hefur hann kynnst nýjum leiðum í hvert skipti sem út í óvissuna er gengið. Mal- bikaðir göngustígar eru til mikillar fyrirmyndar víða um borgina og borgarlandið og koma sér vel, á sumrin. xxx ÍKVERJI verður að viður- kenna að hann óttaðist að hin góðu áform um að halda áfram gönguferðunum myndu frjósa föst eða fjúka út í veður og vind í vetur. Veðrið hefur enn ekki sett strik í reikninginn, hins vegar hefur stundum verið erfitt um gang vegna hálku. Borgarstarfsmenn eiga hrós skilið fyrir það hvað þeir eru snöggir að hálkuverja götur bæj- arins til að þeir sem ferðast á bíl- um komist ídakklaust leiðar sinn- ar. Þeir eru seinni til að hálkuverja gangstéttir og göngustíga. Malbik- uðu göngustígarnir sem eru svo góðir á sumrin breytast í slysa- gildrur á vetrum, ef ekki er við- höfð sérstök aðgát. Að vísu er unn- ið að sanddreifingu en Víkverja hefur sýnst að þar séu borgar- starfsmenn ekki nærri því eins snöggir til. Enda hefur mörgum orðið hált á svellinu í vetur. Vík- verji man til dæmis eftir frétt um það að einn daginn hafi tugir kom- ið brákaðir eða brotnir á slysadeild eftir að veður breyttist skyndilega. Fagna ber áformum um auknar hitalagnir en varla er raunhæft að gera sér vonir um að heitt vatn verði sett í allar gangstéttir og göngustíga. íslensk veðrátta er breytileg og ekki á neitt að treysta í þeim efn- um. Víkverji er þó ákveðinn í að reyna að halda sinni venju og ganga í allan vetur. Það verður síðan að koma í ljós hvernig gengur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.