Morgunblaðið - 12.12.2000, Page 85
MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000 85
BRIDS
lliiisjóii Guðmundur
Páll Arnarson
ÞÚ ERT í suður. Vestur
opnar á veikum tveimur í
hjarta, makker opnunar-
doblar og þú ákveður að
skjóta á þrjú grönd, enda
með DG85 í hjarta og 12
punkta:
Vestur gefur; NS á
hættu.
Norður A 6542
»2 ♦ ADG9 + AKG4
Suður + ÁKD » DG85 ♦ 1042 + 1063
Vestur Norður Austur Suður
2hjörtu Dobl Pass 3grönd
Pass Pass Pass
Vestur kemur út með
hjartatíu og austur fylgir
með smáspili. Ætlarðu að
taka slaginn?
Auðvitað ekki - vestur er
greinilega að koma út frá
AK109xx og getur því varla
átt mikið til hliðar - að
minnsta kosti ekki tígul-
kóng. Ef þú drepur og
svínar tígli spilar austur
hjarta í gegn og vestur tek-
ur þar fímm slagi. Þú dúkk-
ar því og vestur skiptir yfir
í spaðaáttu. Þú átt þann
slag og svínar tígli. Austur
drepur og spilar aftur
spaða. Hvað nú?
Norður
4.6542
♦ ADG9
+ AKG4
Vestur
+ 83
» ÁK10976
♦ 65
+ 952
Austur
+ G1097
»43
♦ K8783
+ D87
Suður
+ ÁKD
» DG85
♦ 1042
+ 1063
Þetta eru erfiðir menn.
Þú sérð enn aðeins átta
slagi (nema spaðinn falli,
sem er ekki líklegt) og virð-
ist þurfa að svína laufgosa.
En ef sú svíning misheppn-
ast mun austur draga fram
hjartað sitt og vörnin fær
fimm slagi: þrjá á hjarta,
einn á tígulkóng og einn á
laufdrottningu (og jafnvel
einn í viðbót á spaða ef þú
hefur tekið þriðja spaðann í
þeirri von að hann félli
3-3).
Við þessari hættu er til
fallegt svar: Þú spilar
hjartadrottningu áður en
lengra er haldið. Ef vestur
tekur tvo slagi á hjarta
færðu níunda slaginn á
hjartagosa, en ef ekki er
samgangur varnarinnar í
hjarta slitinn og nægur
tími til að fría slag á lauf.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað hcilla,
Morgtinblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Arnad heilla
n A ÁRA afmæli. í dag,
ÖU þriðjudaginn 12. des-
ember, verður áttríeður
Gísli Hólm Jónsson, Austur-
vegi 5, Grindavík. Áf því til-
efni munu hann, kona hans
Ragnheiður Bergmunds-
dóttir og börn þeirra bjóða
vinum og vandamönnum að
þiggja kaffisopa í Verka-
lýðsfélagshúsinu, Víkur-
braut 46, Grindavík, hinn 16.
desember nk. frá ki. 15.
«A ÁRA afmæli. Hinn
I V/ 14. desember nk.
verður sjötugur Egill Jóns-
son á Seíjavöllum. Af því til-
efni verður efnt til kvöld-
verðar fyrir vini og
samferðamenn í félagsheim-
ilinu Mánagarði föstudaginn
15. desember kl. 19.30.
r A ÁRA afmæli. í dag,
l) V/ þriðjudaginn 12. des-
ember, verður fimmtugur
Guðmundur Þór Brynjúlfs-
son, pípulagningameistari,
Borgarvík 2, Borgarnesi.
Hann eyðir afmælisdeginum
fjarri heimahögum ásamt
eiginkonu sinni, Ásdísi
Baldvinsdóttur.
SKAK
Umsjón Ilelgi Áss
Grétarsson
SPENNAN á Heims-
meistaramóti FIDE fer nú
að nálgast hámark. Undan-
úrslit hefjast bráðlega en
ekki er ljóst hvort þau
verða haldin í Nýju-Delhí á
Indlandi eða í Teheran í Ir-
an. Það veltur á þvi hvort
allir keppendur sem eftir
verða fái inngöngu í landið!
Staðan kom upp á mótinu á
milli stórmeistaranna Alex
Yermolinsky (2596)
frá Bandaríkjunum
og Xu Jun (2665) frá
Kína. 19. Hxe6!
Rxe6 Veitir harðvít-
ugra viðnám en
19...Dxe6 þar sem
eftir t.d. 20. Hel
Dg4+ 21. Bg3 Dxf3
22. He7+ mátar
hvítur í næsta leik.
20. Rc7 Hac8 21.
Rxe6 Dxe6 22.
Dxb7+ De7 23.
Db3+ De6 24. Db7+
De7 25. Dxa6! Hhd8
26. Hel Dd7 27. Dc4+ Dd5
28. hxg6+ hxg6 29. Dxd5+
Hxd5 30. Hdl og eftir tölu-
verðan barning tókst hvít-
um að bera sigur úr být-
um. Upphaf skákarinnar
var áhugavert: 1. d4 d5 2.
Rf3 Rf6 3. c4 c6 4. Rc3 a6
5. c5 Rbd7 6. Bf4 Rh5 7. e3
g6 8. Bd3 Bg7 9. 0-0 Í6 10.
h3 e5 11. Bh2 e4 12. g4
exd3 13. gxh5 Rf8 14. e4
Bxh3 15. Hel Kf7 16. exd5
cxd5 17. Db3 Dd7 18. Rxd5
Be6 og staðan á stöðu-
myndinni er komin upp.
Hvítur á leik.
LJOÐABROT
ALDASONGUR
Upp vek þú málið mitt,
minn guð, hljóðfæri þitt,
láttu þess strengi standa
fyrir stilling heilags anda,
svo hafni eg heimsins æði,
en hugsi um eilíf gæði.
Á guðs eingetinn son
öll er mín trú og von,
hann gleður mitt geð og sinni,
gefur líf öndu minni,
hef eg ei annað hæli,
heimur er sorgar bæli.
Ljónið það leikur sér
við lömbin drottins hér,
dúfunni fálkinn fargar,
þá flýgur hún sér til bjargar,
háfarnir heimsins státa,
en hænuungarnir gráta.
Bjarni Jónsson
STJÖRNUSPA
eftir Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert tilfinningaríkur ogátt
oft mjög erfitt meðað hemja
þig, þegar þérfinnst mikið
liggja við.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Reyndu að forðast það að hlut-
imir vaxi þér yfir höfuð. Vertu
stöðugt á tánum og leystu þau
mál sem upp koma jafhóðum.
Þannig heldur þú hreinu
borði.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Gættu þín að falla ekki í þá
gryfju að ætla að segja sumt
núna og svo restina síðar,
Menn vilja heyra alla mála-
vöxtu strax; annars fælast
þeir frá.
Tvíburar . ^
(21.maí-20.júní) AA
Haltu þig fiarri skarkalanum
meðan mesta ásóknin í nær-
veru þína gengur yfir. Þegar
hægist um skaltu stíga aftur
fram á sviðið með bros á vör.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Lukkan virðist vera í þínu liði í
dag. En mundu að lánið er valt
og getur snúist þér í mót án
minnsta tilefhis. Vertu því við
öllu búinn.
Ljón
(23.júh'-22. ágúst) Sé#
Þótt allt virðist slétt og fellt á
yfirborðinu skaltu ekki láta
blekkjast. Skyggnstu lengra
og sjáðu sjálfur hvernig málið
er í pottinn búið.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Reyndu að halda sambandi við
sem flesta, sem þú þarft
starfsins vegna. En frítímann
áttu einn og þá þarftu ekki að
gera annað en það sem þú vilt.
(23.sept.-22.okt.)
Þótt þér finnist þú hafa góðan
byr í seglin skaltu staldra við
og athuga þinn gang. Þegar
þú hefur kannað máhð getur
þú haldið áfram för, en fyrr
ekki.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.) MÍC
Þótt margt verði til þess að
þyrla ryki í augu þín, skaltu
halda ró þinni, gaumgæfa
hlutina, og aðeins halda áfram,
ef þú ert viss um framhaldið.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.)
Leyfðu vini þínum að eiga
skjól hjá þér með tilfinningar
sínar. Láttu þér hvergi
bregða, þótt margt beri á
góma, heldur sýndu samúð
þína.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) ac
Þótt þig langi mest til þess að
hlaupast á brott, skaltu taka
þig á og horfast í augu við
hlutina. Þannig getur þú sigr-
ast á erfiðleikunum.
Vatnsberi , «
(20. jan. -18. febr.)
Þú ert með svo mörg járn í
eldinum að þér er nauðugur
einn kostur að fækka þeim.
Aðeins þannig átt þú þér við-
reisnar von og getur haldið
áfram.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þótt árin segi þig kominn af
barnsaldri, skaltu engu að síð-
ur leyfa baminu í þér að njóta
sín. Þannig endurnýjar þú þig
til frekari átaka.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Glæsilegur
jólafatnaður
Hiá Svönu
Opið mán.-laugard.
frá kl. 10-18.
-r -Æ |S
L.
Landlæknisembættið
Góða nótt
Nægur svefn og hvíld eru undirstaða góðrar
heilsu og vellíðunar. Því er mikilvægt að huga
að svefnþörfinni alla ævi og gefa sér tíma til
að slaka á í dagsins önn.
Svefnþörf er einstaklingsbundin en til eru ákveðin viðmið
tengd aldri. Ung- og smábörn 12-18 tíma; forskólabörn
10-12 tíma; skólabörn um 10 tíma; ungmenni 8-10 tíma;
fullorðnir 6-8 tíma.
Syfja að degi er merki um ófullnægjandi svefn hver sem
orsökin er. Ef eftirfarandi ráð duga ekki leitaðu aðstoðar.
Góð ráð til að sofa og hvílast:
• Reglulegur fótaferðartími og svefnvenjur bæta svefn.
• Dagleg hreyfing er góð en ekki rétt fyrir svefn.
• Vera hvorki svangur né of saddur.
• Forðast kaffi, te, kóla- og orkudrykki að kveldi.
• Áfengi og tóbak trufla svefn.
• Ró í umhverfi og huga áður en lagst er til svefns.
• Dempuð lýsing, heitur drykkur eða bað fyrir svefn.
• Gott rúm, hæfilegur hiti og kyrrð í svefnherbergi.
• Ekki liggja andvaka, farðu fram í smástund og reyndu
svo aftur að sofna.
• Svefnlyf geta hjálpað en alls ekki lausn til langframa.
Gefum okkur tíma til að njóta kyrrðar og hvíldar á
aðventunni í einrúmi eða með fjölskyldu og vinum
Nánari upplýsingar á www.landlaeknir.is