Morgunblaðið - 12.12.2000, Side 87
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000 87 ð
FÓLK í FRÉTTUM
MYNDASAGA
VIKUNNAR
Tími til að bjarga
heiminum, aftur
MYNDASÖGUUTGAFA er væg-
ast sagt furðuleg. Þróunin hefur ver-
ið með undarlegasta móti í gegnum
árin og svo virðist sem yrkisefnin
séu merkilegri en höfundarnir.
Myndasögur eru nefnilega ein af
fáum bókmenntagreinum þar sem
mannaskipti tíðkast í hásæti skap-
arans. Það er ekki óalgengt að höf-
undar taki að sér að vefja örlaga-
þræði einhverrar áður þekktar
myndasögupersónu í eitt ár eða svo.
Þetta er hefð sem á sér hliðstæðu í
handritaskrifum sápuópera. Þetta
veldur því að titlar í myndasögubúð-
um eru flokkuð eftir yrkisefnum en
ekki höfundum. Eitthvað sem getur
vissulega verið þægilegt ef þú ert
dyggur aðdáandi vissrar blaðaseríu,
en mikið lifandi skelfingar ósköp
getur það verið þreytandi þegar þú
ert dyggur aðdáandi höfundanna.
í nýjustu bókinni um alheimslögg-
urnar í „The Authority" ofurhetju-
hópnum má glöggt sjá þær áherslu-
breytingar sem geta orðið við slík
höfundasldpti. í bókinni eru tvær
sögur skrifaðar af mismunandi höf-
undunum. Sú fyrri er eftir skapara
ofurhetjuhópsins, íslandsvininum
Wairen Ellis, sem er líklegast
þekktastur fyrir að vera höfundur
Transmetropolitan. Sú seinni er eftir
Mark Millar sem er einn af efnilegri
höfundum yngri kynslóð-
arinnar.
Það er engu líkara en að
Ellis hafi drukkið inn þann
(vín?)anda sem svífur yfir
vötnum hér á landi við
heimsóknir sín-
ar því sagan
hans er sér-
staklega um-
hverfisvæn.
Þar þarf of-
urhetjuhópur-
inn að glíma
við móður
náttúru
„holdinu
klædda“, ef
svo má að
orði komast,
sem er ekki
par hrifin af
ágangi
mannanna
síðustu
hundrað árin. Sagan gerist um það
leyti sem jarðarbúar eru að undirbúa
stærstu áramótaveislu ævi þeirra.
Reyndar munum við eftir þeirri
veislu sem „bara enn ein áramótin".
En tölublöðin, þar sem sagan birtist
upphaflega, komu út á þeim tíma
þegar rökræður um aldamótin voru
það eina sem saumaklúbbar landsins
ræddu.
I seinni sögunni setur Mark Millar
upp sólgleraugun, réttir upp skyrtu-
kragann og losar Ellis beltið utan af
sögupersónunum. Vissulega ber
hann virðingu fyrir börnum Ellis en
það er eins og hann hafi hækkað egó
þeirra um svona 3 metra eða svo.
Sagan sjálf er ekki svo tilkomumikil
en Millar eyðir miklu púðri í það að
kynna lesendum íyrir nýjum hliðum
á persónunum. T.d. verður draum-
urinn um fyrsta samkynhneigða of-
urhetju parið að veruleika á síðum
þessarar bókar.
Birgir Örn Steinarsson
The Authority: Under
New Management. I bdk-
inni eru tvær samtvinn-
aðar sögur eftir tvo
höfunda. Sú fyrri
er eftir Warren EU-
is, teiknuð af Biyan
Hitch. Sú seinni er
eftir Mark Millar,
teiknuð af Frank
Quitely. Sögurnar
tvær voru upp-
haflega gefnar út
í tölublöðum 9-
16. Gefíð út af
Wildstorm Pro-
ductions árið
2000. Fæst í
myndasöguversl-
un Nexus VI.
FYRSTISTAFURINN ER B
TOJVLIST
(i e i s I a p I a t a
HAVE A NICE TRIP
Have a nice trip, fyrsta plata hljóm-
sveitarinnar Luxus. Sveitina skipa
þeir Björn Jörundur Friðbjörnsson,
söngur/bassi, Guðmundur Pét-
ursson, gítar, Stefán Már Magn-
ússon, gítar, Jón Ólafsson, hljóm-
borð, Hafþór S. Guðmundsson,
trommur og forritun. Allir textar
eru eftir Björn Jörund og öll lög
nema Alaska sem samið er í félagi
við Guðmund og Jón. Have A Nice
Trip er svo samið af öllum sveit-
armönnum. Björn Jörundur og Jón
Ólafsson stýrðu upptökum en þeir
Jón og Hafþór hljóðrituðu. Ken
Thomas hljóðblandaði í Thule.
Emilíana Torrini syngur í „Heaven
Knows“ og Simon Kuhran leikur á
fiðlu útsetningar Guðmundar
Péturssonar í The Speaker.
BJÖRN Jörundur Friðbjörnsson
hefur í röskan áratug verið einn at-
kvæðamesti og besti lagahöfundur
okkar íslendinga. í seinni tíð hefur
hann svo sýnt á sér fleiri hæfi-
leikamerki sem leikari og vaxandi
söngvari. Ég hélt fyrst að platan er
hér um ræðir, Have A Nice Trip,
væri sólóplata Björns en svo mun
ekki vera. Platan er skráð í nafni
hljómsveitarinnar Luxus, en hana
skipa valinkunnir tónlistarmenn og
hefur Björn áður starfað mikið
með tveimur þeirra, hinum Ný-
Danska Jóni Ólafsson og gítarleik-
aranum Guðmundi Péturssyni sem
starfaði t.d. með Birni í hljómsveit-
inni Poppland hér um árið.
Lagasmíðarnar, sem flestar eru
Morgunblaðið/Jim Smart
Björn Jörundur Friðbjörnsson
er höfuðpaurinn f Luxus.
Björns, eru haglega saman settar
og ekki siður vel útsettar. Dæmi
um afbragðslög eru „Now You’re
Beautiful", „Glimpse Of A Love
Song“ og „Heaven
Knows“, sem Emilíana
Torrini syngur með
Birni og hefur áður
heyrst. Þessi lög eru í
sjálfu sér feikivel sam-
in en hin tvö síðast-
nefndu eru, líkt og
fleiri lög á plötunni,
undir ansi miklum
áhrifum frá David
nokkrum Bowie. Ég
þekki marga,
ókunnuga Birni, sem eru þessu
sammála og vissu þeir þó ekki að
Björn er aðdáandi Bowies og hefur
ekki farið í grafgötur með það. Það
eru ekki bara í smíðunum sem vitn-
að er í Bowie, heldur er margt í
söngfraseringum Björns sem
minnir á gamla manninn.
Sömuleiðis minnir gítarleikur og
hljómur þeirra Guðmundar og
Stefáns oft á fyrrum samstarfs-
menn Bowies, þá Robert Fripp,
Mick Ronson og Adrian Belew. Það
verður hins vegar ekki tekið af
Guðmundi og Stefáni að þeir eiga
afar sterkan leik á plötunni. Svo ég
ljúki nú þessu Bowie-röfli öllu sam-
an, þá er margt í hljóðblöndun
plötunnar sem minnir einnig á ...
æ, ekki meir, ekki meir!
Textarnir á plötunni eru kannski
ekki í sama gæðaflokki og laga-
smíðarnar, en þeir eru þó sjaldnast
innihaldslausir og gegna augljós-
lega ekki jafnstóru hlutverki og
lagasmíðarnar. Björn er greinilega
enn með kristna trú á dagskrá, en
minnisstæð er vanmetin sólóplata
Björns, BJF, frá árinu 1994 sem
innihélt textalegt þema um guð. Á
Have A Nice Trip kemur guð, eða
öllu heldur hans boðberi, t.d. við
sögu í „The Speaker“, þekkilegri
smíð sem hefur einkar
grípandi viðlag að
geyma.
Það kemur ekk-
ert á óvart að Have
A Nice Trip er afar
vel gerð plata,
tæknilega séð. Annað
væri óeðlilegt frá
þeim mannskap sem
kemur að gerð hennar.
Það kemur kannski
meira á óvart að jafn
reyndur tónlistarmaður og
Björn skuli ekki vera búinn að
skapa sér sterkari tónlistarleg sér-
kenni en raunin er. Hann hefur
satt best að segja aldrei verið jafn
ófrumlegur. Það er kannski ósann-
gjarnt, en ég geri einfaldlega mikl-
ar kröfur til manna sem ég veit að
búa yfir miklum hæfileikum og
Björn Jörundur er tvímælalaust í
þeim hópi.
Orri Harðarson
Ertu slæm í húðinni?
Micro Peeling húðhreinsi-
klúturinn er iausnin
Klúturinn fjarlægir mjúklega allar dauðar
húðfrumur og „djúp-hreinsar“ húðina.
Klúturiim hreinsar farðaleifar, jafnvel úr
fínustu svitaholum, gefur húðinni ferskt út-
lit og örvar blóðstreymi til húðarinnar.
Hann hentar því sérstaklega vel fyrir við-
kvæma húð. Klúturinn er margnota og
þolir þvott í 100 skipti.
Micro Peeling fæst í Lyfju, Lyf & heilsu,
apótekunum og Hagkaup.
Jólatilboð!
Glæsilegar
Mohair-peysur
30% afsláttur
Margar gerðir
Margir litir
^BISUN
Kringlunni - Sími 581 2300
í'
f ■
i
i
l
-fQk
i
\
I
I
W
kr