Morgunblaðið - 31.12.2000, Síða 8

Morgunblaðið - 31.12.2000, Síða 8
8 B SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Bréfakassi Erlends í Unuhúsi vakti mikla athyg’li VIÐ setningu Menningarársins 2000 29. janúar sl. var einn há- punktanna sú stund þegar rofið var innsigli á kassa Erlends í Unuhúsi. Menn höfðu gert sér ýmsar hugmyndir um innihaldið, allt frá því að hann væri tómur til þess að þeir sem betur vissu biðu spenntir eftir að glugga í bréfa- safn Erlends sem reyndist vera í kassanum. Ögmundur Helgason, forstöðu- maður handritadeildar Lands- bókasafnsins, opnaði kassann ásamt Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur borgarstjóra. Upp úr hon- um komu ýmis forvitnileg bréf og skjöl, m.a. bréf frá Halldóri Lax- ness, Þórbergi Þórðarsyni, Steini Steinarr, Nínu Tryggvadóttur og ýmsum öðrum nafnþekktum lista- mönnum. Ögmundur segir að nú haíl allt innihald kassans verið skráð f handritasafnið og gerð verði ítar- leg grein fyrir því í Ritmennt, árs- riti Landsbókasafnsins, á næsta ári. „Þar ritar Aðalsteinn Ingólfs- son listfræðingur grein um bréf frá Nínu Tryggvadóttur til Er- lends sem varpa nýju og skýrara ljósi á tlmabil í lífí hennar sem var mönnum ekki vel ljóst áður,“ segir Ögmundur. „Gylfi Gröndal nýtti sér líka tvö bréf frá Steini Steinarr sem leyndust í kassanum en hann skrifaði fá bréf um ævina svo fengur var að þeim. Handhafar höfundarréttar þeirra Halldórs Laxness og Stefáns frá Hvítadal höfðu mikinn áhuga á bréfum þeirra. Hugsanlega með útgáfu í huga síðar meir.“ Ögmundur segir að bréfasafn Erlends í Unuhúsi og umfjöllun fjölmiðla um þennan viðburð hafi sannarlega vakið athygli almenn- ings á handritadeild Landsbóka- safnsins. „Hvort sem það eru bein tengsl þar á milli eða ekki, þá sýnist mér að árið 2000 sé metár hvað varðar fjölda færslna í aðfangabók hand- ritadeildarinnar. Þetta nýttist okkur vel sem kynning á starf- semi handritadeildarinnar og hef- ur vafalaust vakið fólk til umhugs- unar um hið mikilvæga varð- veisluhlutverk sem handrita- deildin og Landsbókasafnið í heild sinni gegnir.“ Ögmundur Helgason og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir rjúfa innsigli pakka Erlends í Unuhúsi 29. janúar 2000. Morgunblaðið/Fanney Gunnarsdóttir Hópurinn beið björgunar í liðlega þrjá tíma á þaki rútu sem festist í meginstreng Jökulsár á Fjöllum skammt norðan Herðubreiðarlinda. Urhellisrigning og rok var meðan fólkið beið á þakinu. Tvisvar bjargað frá drukknun sama daginn FIMMTÁN manns var bjargað af þaki rútu í meginstreng Jökulsár á Fjöllum skammt norðan Herðu- breiðarlinda 16. ágúst sl. Þar á meðal voru landverðirnir Kári Kristjánsson og Elísabet S. Krist- jánsdóttir, sem siglt höfðu á báti að rútunni til að koma austurríska ferðafólkinu til hjálpar. Straumurinn sogaði bátinn undan þeim þegar Elísabet komst upp á þak rútunnar með hjálp Kára. Hún aðstoðaði hann síðan við að komast upp á þakið, en hann barðist við það hátt í 20 mínútur. Þremur tím- um síðar var hópnum bjargað. „Líf- ið er öðruvísi," segir Kári nú, fjór- um og hálfum mánuði síðar. „Mér var bjargað tvisvar frá drukknun sama daginn, en margir eiga kannski nóg með að átta sig á því að sleppa einu sinni á ævinni frá slíku. Við eigum öll í þessu ennþá en styrkjum hvert annað með því að vera í sambandi við og við, með- al annars við fararstjóra austur- ríska hópsins. Það er sérstök reynsla að horfast í augu við dauð- ann, sérstaklega í svona langan tíma, en okkur var öllum ljóst að færi bíllinn af stað kæmumst við ekki að landi. Biðin var sérstaklega erfið okkur Kári Kristjánsson landvörður. Elísabetu því við vorum að telja hinum trú um að þetta yrði allt í lagi þrátt fyrir að við vissum að næstu fimm mínútur gæti allt farið á verri veg, ef græfist undan bíln- um. Ég hef séð svona gerast í Krossá í Þórsmörk, smálæk miðað við þetta, en bílar hverfa á örfáum mínútum við svona aðstæður. Þennan dag voru á að giska um 600 til 800 rúmmetrar á sekúndu í jökulsánni og hún miklu stórvirkara fyrirbæri en Krossá. Bíllinn grófst stöðugt niður, við þurftum að færa okkur aftar og plássið minnkaði smátt og smátt. Við svona aðstæður talar fólk um að það tæmi batteríin en ég held að það hafi legið við að þau hafi bráðnað hjá okkur við það að miðla öðrum af því sem var von- laust að margra mati,“ segir Kári. Hann er fræðslufulltrúi Vinnueft- irlitsins en hefur verið landvörður í tólf sumur. Hann segir að atvikið breyti engu varðandi umgengni sína við landið. „Ég hef siglt svolítið um jökulárnar mér til fróðleiks og skemmtunar, þekki þær og virði. Þetta eru kraftmikil náttúruöfl sem þarf að umgangast með virðingu.“ í máli Kára kemur fram að með mjög aukinni ferðamennsku þurfi að gera heildarúttekt á hættusvæð- um. „Það þarf að gera áhættugrein- ingu fyrir hvern einasta ferða- mannastað eða leiðir þar sem hætta getur leynst íyrir ferðamenn. Það er ekki eðlilegt að eins mörg slys verði og í sumar og ástæða til þess að greina málið skipulega. Sam- gönguráðuneytið eða umhverfis- ráðuneytið, nema hvorttveggja sé, þarf að ganga í málið.“ Bóndi í Baldursheimi í Mývatnssveit um innflutning á norskum fósturvísum Ahættan meiri en ávinningurinn Fjórir bændur standa að félagsbúinu í Baldursheimi. Her eru þrír þeirra framan við íbúðarhúsið, Gunnar Þór Brynjarsson, Þórunn Einarsdóttir og Þuríður Pétursdóttir. Fjórði ábúandinn er Böðvar Pétursson. mikið. Þórunn sagði að túnin hafi náð sér nokkuð vel á milli ára og í raun ótrúlega vel. „Það verður alltaf mikill þurrkur hér í sveitinni og ef það er mikill hiti og sól er sprettan ekkert of mikil. Ég haf sagt það um búskap í Mývatnssveit, að það sem stendur honum mest fyrir þrifum er hversu þurrviðrasamt er hér. tírkoma og aftur úrkoma er það sem vantar hér og allt þetta uppfok er aðallcga vegna úrkomuleysis." I Baldurshcimi er blandaður bú- skapur, 16 kýr og rúmlega 300 kindur, og framleiðlsuréttur í mjólk ríflega 90.000 lítrar. Þórunn sagði að þar á bæ væri stefnan að halda rekstrinum í svipaðri mynd og að ekki væri áhugi fyrir því að taka tilboði ríkisins varðandi upp- kaup á sauðfjárkvóta. „Annaðhvort er að halda þessu sem maður hefur og sjá hverju fram vindur eða breyta alveg um.“ Fyrsti snjórinn á þessum vetri féll í byrjun nóvember f Mývatns- sveit og þar hefur verið snjór síðan. Þórunn sagðist því vera orðin ansi þreytt á þessu fjasi í fjölmiðlum um auða jörð um allt land. „Vegurinn hér suður er alveg skautasvell og hér hefur verið jólasnjór lengi.“ ÞÓRUNN Einarsdóttir í Baldurs- heimi I í Mývatnssveit sagði að árið sem nú er að Iíða hafi verið ósköp venjulegt, sumarið mjög gott og heyfengur ágætur. Varla er þó hægt að segja að búskapurinn á félagsbúinu í Baldursheimi sé neitt venjulegur því þar hefur verið rek- ið eitt afurðahæsta kúabú landsins til fiölda ára. Á síðasta ári var félagsbúið með mestu meðalafurðir á landinu eftir hveija kú, eða 7.160 kg, og var það jafnframt í fyrsta skipti sem með- alafurðir bús fóru yfir 7.000 kg. Þórunn sagðist gera ráð fyrir að afraksturinn á þessu ári verði svip- aður og í' fyrra en þó hafi ekki gengið alveg eins vel með kýrnar á þessu ári af ýmsum ástæðum. Aðspurð um þennan góða árang- ur sagðist Þórunn ekki kunna neinn galdur í því sambandi. „Ég held að þetta snúist fyrst og fremst um að hugsa vel um skepnurnar, halda þeim hraustum og taka vel eftir því ef eitthvað ber út af.“ Þórunn sagðist vera alfarið á móti því að leyfa innflutning á fóst- urvísum úr norskum kúm. „Ég treysti alveg á hann Guðna [Ágústsson landbúnaðarráðherra] en hann brást mér. Mér finnst áhættan vera meiri en ávinning- urinn, m.a. vegna sjúkdóma og þá eru norsku kýrnar stærri og það kallar á töluverðar brcytingar á fjósum hjá mörgum. Nú og miðað við það sem okkar kýr gefa af sér eru þær ekkert verri en þær norsku. Menn ættu því frekar að vera natnari við si'nar kýr og reyna að ná meiru út úr þeim.“ Þótt heyfengur i' ár hafi verið ágætur þurftu ábúendur í Bald- ursheimi einnig að sækja sér hey niður í Reykjadal líkt og í fyrra en þá komu tún illa undan vetri og kal

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.