Morgunblaðið - 31.12.2000, Síða 21

Morgunblaðið - 31.12.2000, Síða 21
minna a rnoar viijum sem ber að hafa í hug I Skatthlutfall í staðgreiðslu 2001 Skatthlutfall í staðgreiðslu verður 38,76%. Skatthlutfall barna, þ.e. þeirra sem fædd eru 1986 eða síðar, er 6% af tekjum um- fram frítekjumark barna sem er kr. 86.451. Persónuafsláttur/Sjómannaafsláttur Persónuafsláttur er kr. 302.940 á ári, eða kr. 25.245 á mánuði. Heimilt er að nýta 90% af ónýttum persónuafslætti maka á árinu 2001. Sjómannaafsláttur 2001 er 691 kr. á dag. Frádráttarbært iðgjald í lífeyrissjóð Lífeyrisiðgjald sem halda má utan stað- greiðslu er 4% af launum eða reiknuðu endurgjaldi. Heimilt er að færa að auki allt að 4% vegna iðgjalda samkv. samningi um viðbótartryggingavernd, enda séu iðgjöld greidd reglulega til aðila sem falla undir 3. mgr. 8. gr. laga um skyldutryggingu lífeyr- isréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Tryggingagjald Tryggingagjald er óbreytt frá fyrra ári, eða 5,23% og er þá meðtalið markaðsgjald og gjald í ábyrgðarsjóð launa. Sama gjaldstig er fyrir allar atvinnugreinar. Hjá útgerðum fiskiskipa vegna launa sjó- manna bætast við 0,65% vegna slysa- tryggingar og verður gjald þeirra alls 5,88%. Sú breyting verður á gjaldstofni að greiðslur launagreiðanda vegna fæðingar- orlofs mynda ekki stofn til trygginga- gjalds. Þessar greiðslur eru undanþegnar gjaldskyldu, þó ekki hærri fjárhæð en launagreiðandinn fær endurgreidda úr Fæðingarorlofssjóði. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI Verðbreytingarstuöull Verðbreytingarstuðull fyrir árið 2000 er 1,0418. Orðsendingar Orðsendingar um skatthlutfall og skattmat í staðgreiðslu verða sendar launagreið- endum næstu daga en þar koma fram ítarlegar upplýsingar um þessi atriði. Við minnum á orðsendingu sem send var launagreiðendum í nóvember þar sem er að finna allar upplýsingar um útfyllingu launamiða og launaframtals. Skilafrestur vegna launamiða og launaframtals er til 22. janúar 2001. Á upplýsingavef ríkisskattstjóra www.rsk.is er að finna upplýsingar um flest sem viðkemur skattamálum. Þar má nú m.a. nálgast færslulýsingu launamiða fyrir þá sem hyggjast skila launamiðum á tölvutæku formi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.