Morgunblaðið - 31.12.2000, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 31.12.2000, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2000 B 53 Matarlist/Er kampavín gottgegn skammdegispunglyndi? Sól á flöskum ÉG er stödd í París þessi jólin og áramótin. Frakkar virðast vera svona í frekar rólegum gír yfir hátíðimar þó mikið beri á auglýs- ingum og á Þorláksmessu var eitthvað um öngþveiti í búðum og talsvert um menn arkandi með jólatré undir hendinni. Líkt og íslend- ingar gera Frakkar vel við sig í mat og drykk um hátíð- amar og það sem EftirHönnu er mest áberandi Friðriksdóttur i þeim efnum er hin margrómaða „foie gras“ eða andalifrarkæfa og kampavín eins langt og augað eygir. Alls ekki slæm samsetning skal ég segja ykkur. Ostrurnai’ og villisvínið eru svo aldrei fjarri veisluborðinu. Allt frá því að hinn margfrægi munkur Dom Pérignon hóf hinn eðla drykk kampavín í enn hærri hæðir með uppgötvunum sínum og rannsóknum, hefur kampavín verið þjóðardrykkur F’rakka, ásamt rauðvininu vitanlega. Sólkonungurinn Loðvík XIV lét senda sér kampavín í massavís og margir frægir kampavínsþambar- ai- hafa fetað í fótspor hans, t.d. Winston Churchill, Madame Pompadour, sem hvorki meira né minna baðaði sig upp úr kampa- víni, Karen Blixen o.fl. En hvað er svona merkilegt við kampavín og er það eins gott og af er látið? Ekta kampavín, eða freyðivín sem lagað er eftir kampavínsað- ferðinni er mjög tær vökvi og næringarríkur upp að ákveðnu marki. Auðvitað ber að neyta hans í hófi eins og alls annars áfengis, en það er ekki ofsögum sagt og ég held að flestir geti tek- ið undir að það er einhver galsi og gleði sem fylgja kampavíni. Boð sem hefst á kampavínsskál gefur í flestum tilfellum fögur fyrirheit og stendur undir þeim. Vínsmakkarinn Erik-Olaf Hansen mælir með kampavíni gegn vor- þreytu og áhyggjum í bók sinni Drekktu vín; lifðu betur; lifðu lengur. Ég hef sjálf farið í dek- urferð upp í sumarbústað með manni mínum með kampavíns- flösku og jarðarber í farteskinu eftir erilsama viku og viti menn; þreytan og áhyggjurnar gufuðu upp eftir eina kampavínsskál. Kampavínskúrinn gegn þunglyndi stemmir við þá kenningu að hlát- ur er afbragðs meðal gegn þreytu og stressi. Kampavín getur í hófi létt lundina, en sýnt hefur verið fram á að 5-6 mínútna hlátur á dag er mjög heilsusamlegur. Við hlátur fær hjartað smáleikfimi og eins vöðvarnir og heilinn fram- leiðir endoi’fín sem okkur er öll- um nauðsynlegt. Að mínu mati er kampavín dekurdrykkur sem gaman og gott er að hafa við höndina við ýmis tækifæri. Nú fer í hönd nýtt ár og árþús- und sem er við hæfi að skála fyrir í umræddum eðaldrykk. Gleym- um þó aldrei að skála ætíð sem mest í öðrum eðaldrykk: vatninu. Ef við gerum það höldum við stressinu frá og vellíðanin streymir um kroppinn og sálina. Reynið að byija alltaf daginn á vatnsglasi og staupið ykkur reglulega yfir daginn. Það er mjög hollt að drekka vatnsglas rétt fyrir máltíð og eins að hafa ætíð vatnsglas við höndina ef vín er drukkið með matnum. Drekkið heitt te eftir morgunmat og kvöldmat. Á veturna er tilvalið að næra sig sem mest á kraftmiklum grænmetissúpum. Hér fylgir einmitt uppskrift að einni slíkri, afar ljúffengri og til- valinni í forrétt í veisluna. Hún er það ljúffeng að hún kallar mjög líklega á kampavínsskál til handa kokkinum. Spínatsúpa nteð sýrðum rjóma uppskrift fyrir 4 300 g kartöflur 400 g spínat 4 vorlaukar 500 ml vatn 1 laukur 4 msk sýrður rjómi steinselja _____________salt____________ Skrælið kartöflumar og lauk- inn og skerið í bita. Þvoið spínat- ið og vorlaukinn og saxið hann. Hellið vatninu í pott og saltið það, bætið kartöflunum og laukn- um út í og sjóðið við vægan hita í um 15 mínútur. Bætið spínatínu út í (einnig má nota frosið spínat eða úr dós). Sjóðið áfram í um 15 mín. Að suðu lokinni, hellið þá blöndunni í matvinnsluvél ásamt sýrða rjóm- anum. Maukið vel. Hellið í fjórar skálar og skreytið með sýrðum rjóma og ferskri steinselju. Gleði- legt ár! Slökktu 16. janúar til Kanarí frá kr. 29.985 Ut 16. janúar Heim 23. eða 30. jan. Aðeins 24 sæti í boði Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að komast í sólina eftir áramótin á verði sem ekki hefur sést fyrr. Það er 20-25 stiga hiti á Kanarí, írábært veðurfar og þú getur notið nýársins á Kanarí. Þú bókar ferðina núna og tryggir þér síð- ustu sætin. Fjórum dögum fyrir brottfor hringjum við í þig og látum þig vita hvar þú gistir. Meðan á dvölinni stendur nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar. Verð kr. 39.930 Verð kr. 29.985 Vcrð fyrir mann, m.v. 2 í íbúð, gisting, skattar. 16. janúar - vika. Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1800,- Vcrð fyrir manninn, m.v. hjón mcð 2 börn, 2-11 ára, flug og skattar. 16. janúar - vika. Verð kr. 52.930 Verð fyrir mann, m.v. 2 í ibúð, gisting, skattar. 16. janúar - 2 vikur Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1800.- Heimsferðir Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Brúðhjón Allnr borðbúnaður - Glæsileg gjaíavara ■ Brúðhjönalisíar VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. TILKYNNINGAR Frá Sálarrannsóknarfélagi Reykjavíkur Síðumúla 31 s. 588 6060. Miðlarnir, spámiðlarnir og hug- læknarnir Lára Halla Snæfells, Þórhallur Guðmundsson, Margrét Hafsteinsdóttir, Bíbí Ólafsdóttir, Anna Carla Ör- lygsdóttir og Erla Alexand- ersdóttir starfa hjá félaginu og bjóða félagsmönnum og öðrum uppá einkatíma. Upplýsingar um félagið, einka- tíma og timapantanir eru alla virka daga ársins frá kl. 13— 18. Utan þess tíma er einnig hægt að skilja eftir skilaboð á sím- svara félagsins. Netfang: mhs@vortex.is . Sálarrannsóknarfélag Reykjavík- ur starfar í nánum tengslum við Sálarrannsóknarskólann á sama stað. SRFR. Sálarrannsóknarfélag íslands j\l(. Sálarrannsóknar- _5félagiðSáló1918- > 2000, Garðastræti 8, Reykjavík Breski transmiðillinn Tom Dodds kemur og starfar hjá fé- laginu 14. janúar — 2. febrúar. Tom býður upp á einkatíma í lestri. Upplýsingar og bókanir í síma 551 8130. Netfang: srfi@simnet.is . SRFÍ. 5MÁAUGLÝ5INGA Sálarrannsóknarfélag Islands Sálarrannsóknarfé- * lagiðSáló1918- > 2000, Garðastræti 8, Reykjavík Miðlarnir og huglæknarnir Amy Engilberts, Bjarni Kristjánsson, Guðrún Hjörleifsdóttir, Hafsteinn Guðbjörnsson, Kristín Karlsdótt- ir, María Sigurðardóttir, Þórunn Maggý Guðmundsdóttir, Rósa Ólafsdóttir og Skúli Lórentzson starfa hjá félaginu og bjóða upp á einkatíma. Friðbjörg Óskarsdóttir leiðir og heldur utan um bæna- og þróunarhópa. Nemendur úr bæna- og þróun- arhópum bjóða upp á heilun á mánud.- og þriðjudagskv. Ath. að bóka þarf tíma fyrirfram. . Skrifstofusími og símsvari 551 8130 (561 8130). Netfang: srfi@simnet.is. SRFÍ. FÉLAGSLÍF Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund á nýársdag kl. 14.00. Aðalstöðvar KFUM og KFUK, Holtavegi 28. Samkoma á morgun, nýársdag, kl. 17:00. Ræðumaður sr. Ólafur Jóhannsson, formaður KFUM í Reykjavík. Allir velkomnir. fomhjnlp Gamlársdagur: Hátíðarsamkoma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, kl. 16.00. Frjálsir vitnisburðir. Fjölbreyttur söngur. Óskum öllum gleðilegs érs og friðar og blessunar drottins á nýju ári. www.samhjalp.is Hjálpræðis- herinn Kirkjustræti 2 í kvöld, gamlársdagur kl. 23.00: Áramótasamkoma. Majórarnir Turid og Knut Gamst. Nýársdagur kl. 16.00: Nýárs- fagnaður fyrir alla fjölskylduna í umsjón majóranna Turid og Knut Gamst ásamt Aslaug Haug- land. Við óskum ykkur öllum blessunar Guðs yfir nýja árið. KÍRKJM liitlicrsk rríkirkju Jólahátíð fjölskyldunnar á gamlársdag kl. 11.00. www.kristur.is Þrettándaferð Jeppadeildar í Bása 6.-7. jan. Þrettándagleði í þessu sæluríki vetrar og fjalla. Pantið strax eftir helgi. Léttar göngur. Sameiginleg kvöldmál- tið. Sunnudagur 7. janúar kl. 10.00 Nýársferð í Krýsuvík og Herdísarvík. Áð í Krýsuvík- urkirkju og á slóðum skáldsins Einars Ben. í Herdísarvík. 25 ár frá fyrstu kirkjuferð Útivistar. Séra Pétur Þorsteinsson verður með í för. Tunglskinsganga — blysför á fullu tungli 9. janúar kl. 20.00. Útivist óskar öllum gleðilegs nýs ferðaárs og þakkar fyrir það gamla. Sjáumst í sem flestum Uti- vistarferðum á nýja ár- inu! Heimasíða: utivist.is Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Nýársdagur 1. janúar 2001: Hátíðarsamkoma kl. 17.00. Komum, fögnum og byrjum nýtt ár saman. Allir hjartanlega velkomnir. „Guð vonarinnar fylli yður öllum fögnuði og friði í trúnni, svo að þér séuð auðugir að voninni í krafti heilags anda." www.vegurinn.is . KROSSINN Gamlársdagur: Brauðsbrotning kl. 14.00. Nýársnótt: Nýársknall í höndum ungmenna hefst kl. eitt eftir miðnætti. Nýársdagur: Hátíðarsamkoma kl. 20.00. Þriðjudagur: Samkoma kl. 20.30. Miðvikudagur: Bænastund kl. 20.30. Fimmtudagur: Unglingarnir kl. 20.00. Laugardagur: Samkoma kl. 20.30. Fíladelfía Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Nýársdagur: Hátíðarsamkoma kl. 16.30, lofgjörðarhópurinn syngur. Ræðum. Vörður L. Traustason. Allir hjartanlega vel- komnir. Hvitasunnukirkjan Filadelfia sendir landsmönnum öllum bestu óskir um blessunarríkt nýtt ár og þakkar samfylgd á liðnu ári. www.gospel.is . FERÐAFÉLAG # ÍSLANDS Mömaime - sImi S68-2533 Ferðafélag íslands óskar fé- lagsmönnum og landsmönn- um öllum gleðilegs nýs ferða- árs og þakkar ánægjuleg samskipti á árinu sem nú kveður. Áætlunin 2001 er komin út og verður send til félagsmanna á fyrstu dögum nýs árs. Einnig má vitja hennar á skrifstofu. www.fi.is, textavarp RUV bls. 619. S. á skrifstofu 568 2533. frelsið Héðinsgötu 2, sími 533 1777 Sunnudagur: Gleðilegt nýtt ár og þökkum allt liðið. Þriðjudagskvöld kl. 20.00: Biblíuskóli Hugsjón 2001 Föstudagskvöld: Bænastund kl. 20.00. Kl. 21.00: Styrkur unga fólksins. Dans, rapp, predikun, tónlist og mikið fjör. Kaffihúsið í Grófinni 1 er opið frá miðnætti. / Allir velkomnir. Líflinan s: 577 5777 fpg|5| % V 1 n~ssrTmzx>s'Xfmm JUIf111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.