Morgunblaðið - 31.12.2000, Síða 62

Morgunblaðið - 31.12.2000, Síða 62
-182 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ > Hl ■O ■ -» * JARÐHÖRPUSÁLMAR LAR> ■ Trent Reznor, leiótogi Nine Inch Nails. RUIVIUR áratugur er lióinn síðan Trent Reznor sendi frá sér fyrstu plötuna undir nafninu Nine Inch Nails og síóan hefur hann ekki gert nema tvær breióskífur. síó- ast The Fragile sem kom út á síð- asta ári. í kjölfar plötu númer tvö, sem var ekki ýkja vel tekið til að byrja með, sendi hann frá sér safnskífur með endurunnum lög- um og eins er með Fragile, fyrir skemmstu kom út skífan Things Falling Apart. The Fragile náði ekki nema miðl- ungshylli, enda voru aðdáend- ur Reznors flestir búnir að snúa sér að annarri gerð tónlistar en Reznor kýs að leika á þeim fimm árum sem tók hann að setja sarnan plötu. Platan rétt tyllti sér inn á breiðskífu- lista og hvarf síðan sjónum þrátt fyrir tónleikahald og tilheyrandi. Á Things Falling er Reznor við sama heygarðshornið. nema að hann gengur heldur lengra í krafti og hamagangi en á The Fragile. bætir í óhljóðum og keyrslu svona rétt til að undirstrika aó honum hafi verið alvara með myrkrinu og von- leysinu. Reznor sér sjálfur um endurgeró þriggja laganna með aóstoð Aians Moulders, Keith Hillebrandt vinnur tvö lög. Adrian Sherwood eitt, Ben- elli eitt, Dave Oglivie eitt, Danny Lohner eitt og loks vélar Charlie Clouser um eitt lag, en þeir Lohner og Clouser eru í tónleikasveit Nine Inch Nails, sá fyrrnefndi leikur á bassa og gítar og sá síðarnefndi á theremin og hljómborð. EIGINÚTGÁFA hefur blómstrað á árinu og fjöl- margir tónlistarmenn gefið út plötur sem útgáfufyr- irtæki myndu líkastil fæst sinna. Fyrr á þessu ári kom út diskur sem kallast Jarð- hörpusálmar, en á honum leikur Lárus Sigurðsson eigin tónverk á hljóðfæri sem hann hefur smíðað sjálfur og kallar jarðhörpur eða lýrur, en það eru hörpur að fomgrískri fyrirmynd. Lárus gefur diskinn sjálfur út. Lárus Sigurðsson hefur fengist við tónlist lengi og var meðal annars um tíma í hljómsveitinni Eftir- litinu sem stofnuð var upp úr Rauðum flötum fyrir all- löngu. Síðar var hann um tíma í hljómsveit Önnu Hall- dórsdóttur, en í dag leikur hann á lýrur sem hann hefur sjálfur smíðað. Hann segist hafa komist á bragðið með að smíða eigin hljóðfæri er hann var í anthroposofísku námi í Rudolf Steiner-skóla í Bretlandi en innan skólans em hópar í ólíku námi og einn hópurinn fór út í smíð- ar. Þar komst Lárus upp á lagið með að smíða lýrurnar sínar eða jarðhörpur. Lárus leikur á lýrumar ýmist með fingmm eða bogum eftir því hvaða hljómum hann vill ná fram, en þær era líka mis- stórar, alit frá 120-130 sm niður í 30-40 sm. Grindin er yfirleitt úr mahoní, toppurinn úr greni og botninn úr birki, en Láms segist nota þann efnivið sem hendi sé næst. Jarðhörpusálmar er ekki fyrsta platan sem Láms kemur að, hann tók þátt í starfi Birthmark á sínum tíma, lék einnig í hljómsveit Önnu Halldórsdóttur og hljómsveitinni Jarðköku, sem fór lítið fyrir að hans sögn. Þegar hann var við námið í Englandi kynntist hann taív- anskri konu og vini hennar sem rak útgáfu sem sérhæfði sig í ambient-tónlist. „Hún bauð mér að búa til tvo diska, sem ég gerði, tók upp í Real World-hljóðverinu og síðan komu diskarnir út í Taívan. Þá blandaði ég saman gítar- hljómum og hljóðfæram sem ég var að smíða þá, sem er viss vísbending um það sem ég er að pæla í dag.“ Eins og getið er vann Lár- us með þeim félögum í Birth- mark, Valgeiri Sigurðssyni og Svani Kristbergssyni, á sínum tíma og fór í hljóðverið sem Valgeir rekur, Gróður- húsið, að taka Jarðhörpu- sálmana upp, segist hafa spunnið þar nokkur lög. „Þetta var bara spuni, tónlist augnabliksins, en ég hef mjög gaman af að spinna tónlist og finnst mjög mikilvægt að vinna hana þannig. Ég tek allt upp í heilum tökum, en bæti síðan ofan á eftir því sem mér finnst eiga við,“ seg- ir hann, en aðeins tók einn dag að taka allt upp og svo hluta úr degi að ganga frá upptökunum og lagfæra smá- atriði. Láms gefur plötuna út sjálfur og lætur framleiða diskinn hér á landi í litlu upp- lagi, en 12 tónar dreifa hon- um. Hann segir að menn hafi tekið disknum misjafnlega en fæstir áttað sig á hvað á disknum væri, sem sé svo sem skiljanlegt. „Upplýsing- ar á disknum era í lágmarki og helst hefði ég viljað láta frekari upplýsingar fylgja, myndir og álíka, en ég á kannski eftir að gefa út annan disk og segja þá betur frá því sem ég er að gera.“ Láras er þegar farinn að vinna frekar úr þeim hug- myndum sem hann veltir íyrir sér á Jarðhörpusálmadisknum og er nú að vinna upptökurnar með rafeindatækjum og raf- hljóðfærum. „Það er mjög heillandi að blanda þessu svo saman og ég heyri það orðið skýrt fyrir mér hvemig þetta getur orðið, en spumingin er hvort mér tekst að koma því þannig frá mér.“ Látras hefur ekki haldið tónleika þar sem hann leikur á lýrurnar, en hann hefur leikið á þær fyrir fólk á Sól- heimum þar sem hann býr og starfar. „Ég hefði gaman af Morgunblaðið/Sverrir að spila á tónleikum, en það setur mér vissar skorður að ég er einn. Ég vann með Önnu Halldórsdóttur og við náðum mjög vel saman, en hún er því miður flutt til útlanda og verður ekki af frekara sam- starfi í bili að minnsta kosti. Ég yrði mjög glaður ef mér tækist að koma mér upp lýra- hljómsveit.“ Jackie Mittoo minnst viku. Ekki er gott að segja til um hve mörgum lögum Mittoo kom að á sjöunda áratugnum en sumir hafa gert því skóna að þau skipti þúsundum. 1968 tók Jackie Mittoo sig upp og fluttist búferlum til Kanada þar sem hann settist að í Toronto og fékk vinnu við stofnun sem sá um að hæfilega mikið væri sent út af kanad- ískri tónlist í ríkisútvarpi Kan- ada. Hann kom þó reglulega til Jamaíku með lagabunka í far- teskinu til að taka upp og fór einnig í upptökuferðir til Bret- lands, aukinheldur sem hann tók upp og gaf út undir eigin merki í Toronto. Hann tók allt- af talsvert upp hjá Dodd en einnig með Bunny Lee og Sug- ar Minott. Mittoo tók upp eina breiðskífu til íyrir Studio One- útgáfuna, Showcase 1982, þai- sem hann tók fyrir gömul lög og endurgerði, en einnig fengu ný lög að fljóta með. Sjö áram síðar komu Skatalites saman aftur til að leika undir í heims- reisu hjá Bunny Wailer, en Mittoo varð að hætta fljótlega vegna veikinda og lést úr krabba í desember 1990. Eins og getið er í upphafi er kveikja þessara skrifa safnskíf- ur með Jackie Mittoo. Önnur þeirra er frá Universal Sound, heitir The keyboard King at Studio One, og hefur að geyma sýnishorn af því sem Mittoo tók upp um miðjan sjöunda áratug- inn, en einnig era tvö lög frá síðustu upptökulotunni fyrir Studio One. Skífan sú er hreint fyrirtak, en einnig ættu menn að reyna að verða sér úti um aðra safnskífu, Show Case sem Culture Press gefur út, en vert er að vekja athygli á því að þar er ekki á ferð síðasta platan sem Mittoo hljóðritaði fyrir Dodd, sem heitir það sama, heldur er á henni safn laga sem Mittoo tók upp með Bunny „Striker" Lee og var tekin upp hjá þeim mikla reggísnillingi King Tubby. Upptökumar eru frá miðjum áttunda áratugnum og mjög reggívæddar eins og gefur að skilja. Show Case- platan sem Dodd gaf út á átt- unda áratugnum er líka skyldu- eign þvi að þar fer Mittoo á kostum með Emest Ranglin sér til halds og trausts meðal annarra. REGGI HEFUR verið í mikilli sókn á þessu ári og stöðugur straumur af skífum með endur- útgefinni snilld frá fyrri áram. Mikið hefur borið á fi-ábæram safnskífum frá Blood & Fire, en einnig hefur nokkuð verið um fyrirtaksplötur frá Soul Jazz/Universal Sound- útgáfunni. Þar á meðal er safn- diskur með Jackie Mittoo, sem er hvalreki á fjörar reggívina, ekki síður en tónlistar- áhugamanna almennt, en einn- ig er vert að minast tíundu ár- tíðar Mittoos fyrir skemmstu. Frá Jamaica hafa komið margir framúrskarandi tónlistarmenn í ýmsum geir- ^mmm^mmm um tónlistar og nægir að nefna þá djassfélaga Emest Ranglin og Monty Alex- ander. Rangl- in, sem enn er cltir Ama Matthíasson Jamaíku og útgáfa þar gekk einna helst út á að reyna að líkja sem best eftir henni. Það átti þó eftir að breytast, ekki síst eftir að Clement „Coxone" Dodd fann upp ska í Studio One-hljóðveri sínu með því að segja Ranglin að breyta áherslum í gítartakti. Síðan kom Prince Buster með þá byltingar- kenndu hugmynd að nota rasta- takt í ska-lagi og í kjölfarið varð sannkölluð í fangelsi skömmu síðar, hefði sveitin án efa náð mun lengra. Skatalites tóku upp grúa af tón- list fyrir Dodd, ýmist undir eigin nafni eða sem und- irleikarar hjá hin- um og þess- að gefa út skemmtilegar skífur, kom reyndar mjög við sögu er ska varð til og síðar rocksteady og reggí. Annar maður sem mikil áhrif hafði á þá þróun var hflómborðsleikarinn snjalli Jackie Mittoo, en tilefni þess- arar samantektar er einmitt safnskífur með upptökum hans, annars vegar á sjöunda áratugnum, þegar ska er að þróast í rocksteady, og þeim áttunda þegar allt snerist um reggí. Jackie Mittoo, sem skírður var Donat Roy Mittoo, fæddist árið 1948 og sýndi snemma mikla tónlistarhæfileika. Sagan hermir að hann hafi verið far- inn að leika á píanó aðeins fjög- urra ára gamall og sat við hljómborðið að segja eftir það. Sem unglingur lék hann með ýsmum sveitum, þar á meðal í Jackie Mitree-tríóinu sem hann rak með Augustus Pablo og lék að sögn lög eftir Mittoo. Snemma á sjötta áratugnum, þegar Mittoo var aðeins fjórtán ára, var hann með eftirsóttustu hljómborðsleikuram Jamaíku og lék í tveimur hljómsveitum, The Sheiks og The Rivals, sem nutu mikillar hylli. Sjötta áratuginn og fram á þann sjöunda var bandarísk soul-tónlist gríðarlega vinsæl á sprenging í upptök- um og tónlistarút- gáfu á Jamaíku. Jackie Mittoo skrópaði gjaman í skóla til að fá að spila og kom sér vel að vera nærstaddur þegar Coxone vant- aði einu sinni sem oftar píanóleikara í einni upptökunni því að eftir að hann hafði heyrt í Mittoo gerði hann unglinginn að tónlistarstjóra Stud- io One-hljóðversins og -útgáfunnar. Þeg- ar svo fastahópur undirleikara hjá Dodd ákvað að taka upp undir eigin nafni urðu The Skatalites til. Þrátt fyrir skamma ævi, að- eins fjórtán mán- uði, er Skatalites ein sú áhrifa- mesta sem frá Jamaíku hefur komið. Ef ekki hefði verið fyrir geðbilun bás- únuleikarans snjalla, Dons Drummonds, sem myrti eiginkonu sína og lést um, en emmg tók flokkurinn upp fyrir Duke Reid og Yap- bræður. Mittoo hafði í nógu að snú- ast þar fyrir utan, því hann sá um nán- ast allar upptökur hjá Studio Óne á þessum tíma, stýrði upptökum, lék á hljóð- færi og samdi lög ef svo bar undir. Eftir að Skat- alites leystist upp hóf Mittoo sólóferil með góð- um árangri, en hann samdi líka taktgrunna fyrir aðra og fékk greitt sérstak- lega fyrir að skila fimm grannum að nýjum lögum á

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.