Skírnir - 01.01.1903, Blaðsíða 13
t'réttir frá íslandi.
15
Mýrar, frá Urriðaá vestur undir Hítará, og fór til hans um 19,400 kr.
Trébrú var gcrð á Alftá. Þá var og nokkur vcgagcrð á Mýrum í Aust-
ur-Skaftafellssýslu, og fóru til þess um 3000 kr. Gert var við þjóðveg-
inn á Hrútafjarðarhálsi. — Fjallvegur var gerður á Laxárdalsheiði í
Strandasýslu, og fór mest alt fjallvegaféð í hann. Auk þess var víða
gert við vegi, en það voru smáviðgerðir, sem hér yrði of langt upp
að telja. Sigurður Thoroddsen mannvirkjafræðingur hafði yfirumsjón
með vegunum, en undir honum stóðu aftur verkstjórar, sinn á hverjum
staðnum.
Misferli og mannalát.
Þetta ár varð mikill skaði á mönnum og munum, bæði af völdum
óblíðrar veðráttu til lands og sjávar og sakir eldsvoða eður ýmsra slysa.
Skulu hér tilfærð nokkur dæmi.
Bátur undan Jökli með 4 mönnum á fórst 2. jau. — A þrcttánda
dag jóla gekk ofsaveður vfir Suðurland, og. urðu talsverðar skcmdir á
húsum og skipum, bæði í Reykjavík og austanfjalls. 6. febrúar gerði
og ofsaveður í Roykjavík; rak þá gufuskipið „Modesta11 og botnvörpu-
skipið „Princess Melton“ u]ip að landi. Varð mönnum að vísu bjarg-
að, en skipin löskuðust nokkuð, þó varð þeim náð út siðar. Þá sökk
og kolabyrðingur á Rauðarárvík hjá Reykjavík. Hann var eign Brydes-
verzlunar, og voru í honum 240 , skpd. af kolum. Um mánaðamótin
janúar og febrúar tók og af í leysingu brú á Vesturá í Miðfirði. Var
hún að eins 2 ára gömul og liafði kostað 1300 kr. Hinn 22. marz
brann skólahúsið á Möðruvöllum í Hörgárdal til kaldra kola. Misti
Jón Hjaltalín skólastjóri mestan hlut af bókasafni sínu, og Halldór
Briem kennari misti ffesta muni sína og bækur. Eigi vissu menn annað
um upptök eldsins, en að hann kviknaði á efsta lofti í húsinu. Er
þetta fjórði bruninn á Möðruvöllum á rúmum 70 árum. Húsið var
landssjóðseign og vátrygt fyrir 30,000 kr. — 20. marz rak hákarlaskipið
„Kjóinn“ á land í Siglufirði í ofsaveðri, en skipverjar björguðust. Var
skipið frá Bjarna Einarssyni, trésmið á Akureyri. Þá strandaði og
botnvörpuskip við Hellna og varð skipverjum bjargað. Þá straudaði
og 14. apríl enskt botnvörpuskip á Býjarskerseyri við Miðnes, en mönn-
um og farmi varð bjargað. Þetta vor varð afarmikill skaði i Landeyj-
urn af vatusílóði í Þverá; brauzt hún yfir baltka sína og ruddi séf