Skírnir - 01.01.1903, Blaðsíða 32
34
I'réttíi' l‘rá íslandi.
menskana. Til skrifstofustjóra voru þessir ráðnir: Jón Magnússon,
áður landshöfðingjaritari, á fyrstu skrifstofu (kirkju- og kenslumál, dóms-
mál og heilbrigðismál); Jón Hermannsson, cand. jur., aðstoðarmaður
í íslenzka stjórnarráðinu í Kaupmannaliöfn, á aðra skrifstofu (landbún-
að, samgöngumál o. fl.); Eggert Briem, sýslumaðnr i Skagafjarðar-
syslu á þriðju skrifstofu (endurskoðunarmál o. fl.). t*á voru og ráðnir
hinir aðrir starfsmenn stjórnarráðsins, en veitingu gátu þeir auðvitað
eigi fengið fyrir þessum embsettum, fyr en stjórnarskráin var gengin
i gildi.
Um bankamálið voru töluverðar deilur, eins og að undanfömu.
Hlutafélagsbánkanum, er samþyktur var á alþingi 1901, og hlaut stað-
festingu konungs 7. júrxí 1902, og þeir Arntzen og Warburg voru
frumkvöðlarnir að, varð erfitt þegar til kom að fá nægilegt fjármagn
til þess að hefja bankaverzlun hér á landi, en i lögunum var til skílið
að það yrði 2 miljónir króna. Var svo um mælt í leyfisbréfi því, er
ráðgjafi íslands gaf út ö. nóv. 1909 handa þeim Arntzen og Warburg,
og getið er um í fréttunum það ár, að ef leyfishafendur eigi stofnuðu
bankann fyrir 30. sept. 1903, þá væri ráðaneytinu heimilt að fela
stofnun bankans öðru félagi, er fært væri um að íullnægja þeim skil-
yrðum, er sett voi-u í bankalögunum frá 7. júní 1902. Eigi skrifuðu
íslendingar sig fyrir hlutum í bankanum svo nokkru næmi. Um sumarið 1903
leit allóvænlega út fyrir, að nokkuð yrði af bankanum, og þorði al-
þingi því eigi annað en að samþykkja lög um stofnun seðladeildar
í landsbankanum, ef svo færi að hlutafélagsbankinn eigi yrði stofnaður.
En á síðustu stundu tóku nokkrir peningamenn sig saman og skrifuðu
sig fyrir hlutaupphæðinni 25. sept., og afsöluðu þeir Arntzen og War-
burg rétti sínum til þessa félags. í þessu hlutafélagi eru þeir helztir:
Privatbankinn í Kaupmannahöfn, Centralbankinn norski í Kristjaníu
og víxlararnir Rubin & Bing í Kaupmannahöfn, bæði fyrir eigin reikn-
ing og fyrir hönd útlendra banka. Í reglugerðinni fyrir íslandsbanka
öru störf bankaus talin þessi: að taka við peningum á dálk eða sem
innláni; a ð lána gegn trygging í áreiðanlegum verðbréfum, alt að 75%
af verði þeirra, a ð veita skyndilán gegn tryggingu í verzlunarvöru;
að kaupa og selja vixla, dýra málma, skuldabréf og hlutabréf, að ráð-
stafa lánum og útvega fé til fyrirtækja í atvinnuvegum, að láta í té
lán gegn sjálfskuldarábyrgð eða veði, svo og á hlaupareikning. Aðrar
tuguudir af baukastörfum eu þessar, má baukiuu ekki takast á houdur,