Skírnir - 01.01.1903, Blaðsíða 67
69
Stjórnarbylting í Serbíu.
ur, fæddur 1846, tab'nn vitur maður og vel lærður. Á yngri árum
var bann i fjelagsskap við jafnaðarmenn og kallaður „Pjetur rauði“.
Hann er kvongaður dóttur furgtans í Montenegró og því svjli Yiktors
Ítalíukonungs.
Uppreisnin i Makedóníu.
í síðasta ári Sldrnis var í Tyrklandsþætti skýrt frá byrjun þoss-
arar uppreisnar. Mestallan siðari hluta ársins geisaði þar stöðugt ófrið-
ur. Með vetrarkomunni rjenaði hann reyndar, án þess þó að nokkur
endi væri bundinn á þrætumálin.
Makedónía liggur mitt í löndum Tyrkjaá Balkanskaganum. Fyrir
norðan er Serbía og svo Búlgaría, on Gríkkland fyrir sunnan. íbúar
Makedóníu eru sambland af öllurn þeim þjóðum sem i kring búa og
er sambúðin milli þjóðflokkanna inubyrðis allt annað en góð; trúarbrögðin
eru margvísleg og tungumálin eins. l’að var Berlinarfundinum 1878 að
kenna, aðMakedóníalosnaði þá ekki undan yfirráðum Tyrkja ásamt Búlgar-
iu, þegar stríðinu lauk milli Rússa og Tyrkja. Síðan hefur aldrei verið
fullur friður i landinu. Búlgarar hafa blásið að kolunum og vilja þeir
sameina Makedóníu Búlgariu. Það eru Búlgarar og þeirra flokkur í
Makedóníu sem hafið hafa þessa uppreisn.
„Ef um þjóðarjett er að ræða, geta þrjú riki gert tilkall til Make-
dóníu, Serbía, Búlgaría og Grikkland11, segir serbneskur maður, S.
Gopocevic, sem ritaði um þetta mál meðan á stríðinu stóð milli Grikkja
og Tyrkja fyrir fáum árum. Segir hann, að af 2,900,000 ibúum'í Makedóníu
sjeu 2.050,000 Serbar. Af þeim telur hann 510,000 Múhameðstrúar og heyr-
andi til flokki Tyrkja, en í honum telur hann alls 900,000 manna. Næst-
fjölmennasta þióðflokkinn eftir Serba telur hann Grikki og þá Búlgara.
En þótt Serbar sjeu langfjölmennasti þjóðflokkurinn í landinu, þá segir
hann almenningsviljann engan veginn hallast i þá átt, að sameinast
Serbum, heldur verði Búlgarar þar hlutskarpastir og næstir þeim Grikkir.
Hyggur hann, að ef landsbúar ættú frjálst val um það, hverju riki
Makedónía skyldi fylgja, þá mundi fullur helmingur þeirra greiða Búlg-
aríu atkvæði. Um aðferð Búlgara til þess að auka fylgi sitt i Make-
dóniu fer hann þessum orðum: „Stjórnin í Búlgaríu ver allt að 3,700,000
franka árlega til þess að styðja fylgi sitt meðal Makedóníumanna. Fyrir
þetta fje eru haldnir margir skólar [1 æðri skóli, 26 lægri skólar, 6
kvennaskólar og yfir 360 alþýðuskólar], sendir út um landið kennarar,