Skírnir - 01.01.1903, Blaðsíða 26
Píóttir fró fslandi,
um, er fengnar verða I hendur forsetastöðurnar í amtsráðunum fjórum,
skal greiða 800 kr. á ári af jafnaðarsjóði sem þóknun fyrir skrifstofu-
kostnað. Þó mega amtsráðin hækka þessa uppheeð.
Auk þessara stórmála, er hér hafa verið talin, voru samþykt mörg
önnur þýðingarmikil lagafrumvörp á þessu þingi, og skulu hér talin
hin helztu, og eru það þessi: Lög um verðlaun fyrir útflutt smjör;
lög um kosning 4 nýrra þingmanna (þeir 4 þingmenn, er kjósa skal I
viðbót samkvæmt nýju stjórnarskránni, skulu kosnir sinn af hverjum kaup-
stað landsins); lög um kosningar til alþingis (leynilegar kosningar með
kjörstað í hverjum hreppi); lög um ráðstafanir til útrýmingar fjárkláð-
ans (landstjórninni veitist heimild til að gjöra ráðstafanir til algerðrar
útrýmingar fjárkláðans og ráða til þess starfa framkvæmdarstjóra fyrir
land alt, er svo tekur sér aðstoðarmenn eftir þörfum); lög um eftirlit
með þilskipum, er notuð eru til fiskiveiða og vöruflutninga; lög um
breyting á iögum 18. febr. 1886 um utanþjóðkirkjumenn; lög um frið-
un fugla; lög um varnir gegn berklaveiki; lög um stofnun lagaskóla á
íslandi, (við skólann skal vera 1 fastur kennari með 4000 kr. launum,
en auk hans skulu dómarar iandsyfirréttarins hafa á hendi kenslu við
skólann gegn 500 kr. launaviðbót hvor. Þeir einir, er leysa próf af
hendi við skólann, skulu eiga aðgang að embættum þeira hér á landi
er lögfræðingar skipa); lög um eftirlaun (Hver sá er fengið hefir
lausn frá embætti með eftirlaunarétti, skal í eftirlaun fá t/s embættis-
launaupphæðar sinnar og 20 kr. að auki fyrir hvert embættisár. Fleiri,
en 35 embættisár koma þó eigi til greina. Sá sem er fullra 70 ára,
á rétt til þess að fá lausn með þessum eftirlaunum); lög um skyldu em-
bættismanna til að safna sér ellistyrk eða tryggja sér geymdan lífeyri;
lög um gagnfræðaskóla á Akureyri. (Til þess að reisa og útbúa gagn-
fræðaskóla á Akureyri með 45—50 heimavistum, má verja alt að 67000
kr. úr landsjóði. Skulu 3 kennarar vera við skólann, og er einn
þeírra jafnframt skólastjóri. Skólastjóri skal hafa að launum 3000 kr.
á ári og auk þ#ss leigulausan bústað í skólahúsinu, 1. kennari 2000
kr., en 2. kennari 1600 kr. á ári); lög um lífsábyrgð fyrir sjómenn.
Síðast skulu hér talín fjárlög 1904—1905, er flæktust fram og aft-
ur milli deildauna, og voru loks samþykt í sameinuðu þingi, sama
daginn og þingi var slitið. Yoru deildirnar mjög ósammála um fjárlög-
in, því að efri deild þótti alt of langt farið í fjáraustrinum, en neðri
deild taldi óhjákvæmilegar allar þær fjárveitingar, er nokkru næjnu,