Skírnir - 01.12.1909, Side 19
Um starf og stjörn sjnkrasamlaga.
»Eg vildi eg hefði verið í þessu«.
í ritgerð minni »um sjúkrasamlög«, í III. hefti Skírnis
þ. á., lét eg þess getið, að öllum þeim, er því máli vildu
sinna, stæði til boða að fá frekari leiðbeiningar, ef þeir
sneru sér til mín eða annara yfirmanna Oddfellowfélags-
ins í Reykjavík.
Mér hafa borist fyrirspurnir úr ýmsum áttum og
spyrja allir þess, hvernig eigi að orða lög sjúkrasam-
laga.
Hér í Reykjavik hefir fyrir skömmu verið stofnað
nýtt sjúkrasamlag, sem ætlast er til að nái yfir allan bæ-
inn og til allra vinnustétta. Þetta nýja samlag skrifaði
Oddfellowfélaginu í haust og bað um uppkast að lögum
handa sér. Var þá kosin nefnd manna í Oddfellowfélag-
inu til að vinna að þeirri lagasmíð; voru þeir í nefndinni
með mér: Eggert Claessen yfirréttarmálaflutningsmaður,
Halldór Daníelsson yfirdómari, Klemens Jónsson landritari
og Sighvatur Bjarnason bankastjóri.
Við fimm höfum nú samið fyrirmynd að lögum fyrir
sjúkrasamlög í kaupstöðum.
Það er þetta frumvarp, sem hér kemur fyrir almenn-
ingssjónir, og læt eg fylgja hverri grein nokkrar skýr-
ingar, og bendingar um breytingar, sem gera þarf, ef
sjúkrasamlag er stofnað í sveit.
Þeir, sem þetta lesa, eru beðnir að lesa ekki lengra
að sinni, en kynna sér vandlega fyrri ritgerð mína, sem