Skírnir - 01.12.1909, Síða 23
Um starf og stjórn sjúkrasamlaga.
311
inu í gerðardóm, sbr. 17. gr., þá má hann halda réttind-
um sínum þar til dómur fellur.
3) Ef hluttækur samlagsmaður fer úr kaupstaðnum
um stundarsakir til að leita sér atvinnu, eða í öðrum
nauðsynlegum erindum, þá má hann gerast hlutlaus meðan
hann er fjarverandi, en greiði hann öll samlagsgjöld sín,
þá á hann heimtingu á dagpeningum, ef hann sannar með
læknisvottorði að hann hafi verið ófær til vinnu vegna
veikinda, en ekki á hann þá tilkall til neinna annara
hlunninda úr samlagssjóði.
Hlutlausir félagar, þeir sem nefndir eru í 2. og 3.
lið, skulu greiða í samlagssjóð 1 kr. á ári. Þeir geta
orðið hluttækir aftur, hvað sem líður aldri þeirra eða
heilsu, ef ekki skortir önnur skilyrði, sbr. 2. gr.
Allir hlutlausir samlagsmenn, er verða hluttækir,
skulu þá hlíta ákvæði 5. gr.
Hér er gert ráð fyrir því, að rikismenn og yfirleitt hverir sem
vilja, geti verið í samlaginu, án þess að njóta neinna hlunninda,
til þess eins, að styrkja samlagið. 4. málsgrein i 1. staflið, »Ef
hlutlaus félagi“ o. s. frv., má vel sleppa. Akvæðin í 3. staflið eru
nauðsynleg hér á landi, af því að það er svo algengt, að fólk
leiti sér atvinnu í önnur héruð; þau eru eina undantekningin frá þeirri
meginreglu, að þeir einir geti verið í samlaginu, sem dvelja á sam-
lagssvæðinu.
4. gr.
Hver sá, er vill ganga í sjúkrasamlagið, skal færa
stjórninni skriflega inntökubeiðni og læknisvottorð.
Því skal ráða til lykta á næsta stjórnarfundi, hvort
beiðandi verður tekinn í samlagið.
Ef beiðni er hafnað eða samlagsstjórnin í vafa um,
hvað gera skuli, þá má vísa málinu i gerð; net'nir stjórnin
einn til úr flokki félagsmanna, læknar samlagsins annan,
en þriðja bæjarstjórn, og fella þeir fullnaðarúrskurð.
Nú er einhverjum veitt viðtaka í samlagið, og er
hann þá talinn félagi þess frá næstu mánaðamótum.
Béttast er að hafa prentuð eyðublöð fyrir inntökuheiðnir og lækn-
isvottorð. Akvæðin í 3. málsgrein eiga að koma í veg fyrir að stjórn