Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1909, Page 29

Skírnir - 01.12.1909, Page 29
Um starf og stjórn sjúkrasamlaga. 317 verðnr vinnufær 8. janúar; hann hefir þá verið veikur 7 nætur og fær enga dagpeninga. Annað dæmi : Samlagsmaður legst 1. febrúar, til- kynnir sjúkdóm sinn 4. febrúar, verður vinnufær 14. febrúar; hann hefir þá verið veikur 13. daga og fær dagpeninga fyrir 10 daga (4.—13. febr.). Það er afar áríðandi, að stjórn sjúkrasamlags hafi nána gát á þvi, að samlagsmenn fái ekki dagpeninga, ef þeir eru ekki með öllu ófærir til vinnn. Ef skæða farsótt her að höndum, sem „vörn er sett við“ (sbr. 2. gr. i lögum 16. nóv. 1907 um varnir gegn útbreiðslu næmra sjúkdóma), þá getur farið svo, að mikill þorri samlagsmanna sýkist og samlagið verði gjaldþrota; því til varnar er það ákvæði, að stjórnin geti, ef svo ber undir, látið alla dagpeniuga falla niður um stundarsakir, t. d. 1—2 mánaða tima ef mislingar ganga um alt héraðið. öll sjúkrasamlög hafa tímatakmörk á dagpeningatryggingunni; væru ekki þau takmörk, þá yrðu iðgjöldin að vera miklu hærri. Hér er lagt til að dagpeningar séu greiddir 12 vikur samtals á hverjum 12 mánaða fresti. Ung samlög verða að vera varkár i þvi efni. Sum er- lend samlög greiða dagpeninga í 26 vikur á hverjum 12 mánaða fresti, en þau eru þá fjölmenn og gömul og eiga mikið fé i sjóði. Hvers vegna er sagt „á 12 mánaða fresti11 og ekki „á hverju ári“? Af þvi að það er miklu réttiátara. Utkoman á að vera, að enginn fái dagpeninga lengri tima samfleytt, en nemi 12 vikum. En ef hér stæði „áhverju ári“, þá gæti svo farið, að samlagsmaður mætti heimta dagpeninga 24 vikur samfleytt, sem sé 12 vikur fyrir og 12 vikur eftir áramót. Hvernig á þá að skilja orðin: „á 12 mánaða fresti“ ? Dæmi: Samlagsmaður verður sjúkur i fyrsta sinni 15. mai 1910, er veikur og fær dagpeninga í 6 vikur; aftur verður hann sjúkur 1. nóvember 1910 og fær nú dag- peninga i 4 vikur; þriðja sinni legst hann 1. april 1911 og liggur til 15. júní 1911; þá fær hann ekki dagpeninga nema 2 vikur frá 1. april, ai því að þá eru komnar fullar 12 vikur; en 15. maí 1911 fær hann aftur rétt til dagpeninga, af því að þá er liðinn 12 mánaða fresturinn, B. gr. Ef einhver nýtur hlunninda úr samlagssjóði, hvort heldur eru dagpeningar, eða sjúkrahússvist, eða læknis- hjálp í heimahúsum, í 52 vikur samtals á 3 samfleyttum reikningsárum, þá missir hann rétt til frekari hlunninda og er úr samlaginu. Nú sannar hann síðar með læknisvottorði, að hann sé heill heilsu og að því leyti tækur í samlagið, sbr. 2. gr., og skal þá aftur telja hann samlagsmann með fullum réttindum, en þó eigi fyr en frá upphafi næsta reikningsárs.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.