Skírnir - 01.12.1909, Qupperneq 32
320
Um starf og stjórn sjúkrasamlaga.
9) Hver samlagsmaður er skyldur að gegna, ef hann
er kjörinn í stjórn samlagsins eða endurskoðunarmaður.
10) Hver samlagsmaður er skyldur að birta stjórn
samlagsins, ef hann skiftir um bústað.
Nú flytur hann sig búferlum út úr..............kaupstað
og er hann þá úr samlaginu.
11) Þeir er fara úr samlaginu eiga enga heimtingu
á neinu því fé, er goldið hefir verið í samlagssjóð.
Hér á landi vantar vitneskju nm veikindakostnað almennings. Þess
vegna er afarerfitt að segja um það, hversu há iðgjöld muni þurfa til
tryggingar á þessum kostnaði. I litlum hreppum ættu menn að geta
horið sig saman um það, hvað þessi útgjöld — að undanteknum atvinnu-
missi — hafi verið mikil í nokkur ár, og þá ekki gleyma þvi, ef einhver
úr hrepnum hefir farið i sjúkrahús. Gerum að hreppsbúar komist að þeirri
niðurstöðu, að veikindakostnaðurinn hafi nnmið að meðaltali H kr., ef
jafnað er niður á allar fullorðnar manneskjur (18 ára eða eldri); þá ætti
iðgjaldið að vera 6 kr. á ári, eða 50 aurar á mánuði, fyrir þá, sem ekki
tryggja sér dagpeninga. En ef útkoman yrði sú, að kostnaðurinn hafi
ekki farið fram úr 3 kr. 60 aur. á ári, þá ætti mánaðargjaldið að vera
30 aur. Svigatölurnar í þessari 9. gr. uppkastsins, eiga að vera til leið-
heiningar og íhugunar. En réttast er að fara ekki of lágt, ávalt hægra
að lækka gjöld, en hækka.
Mörg erlend sjúkrasamlög vilja ekki taka til tryggingar þá sem eru
.orðnir hálf fimtugir að aldri; veikindahættan vex með aldrinum. En ef
rosknir menn eru teknir i samlag, þá verður að heimta af þeim auka-
gjald, eins og hér er gert.
Akvæðin i 4 lið greinarinnar ern altið i útlendum sjúkrasamlöguœ,
enda sanngjörn.
Það mun þykja umstang í sveitum að greiða mánaðargjöld; en hér
er tvenns að gæta, þess fyrst, að sjúkrasamlög verða ávalt að ganga
TÍkt eftir þvi, að iðgjöldin séu greidd fyrir fram, þess annars, að flestum
er hægra um tið gjöld smá, en eitt gjald stórt. Auðvitað fer eins
ve) á þvi, að menn greiði íyrir ársfjórðung eða missiri eða heilt ár í
senn; en hinu má aldrei gleyma, að heimta iðgjöldin fyrirfram; það
gjöra öll tryggingarfélög.
II. Stjórn samlagsins.
10. gr.
Stjórn skal velja skriflega á aðalfundi í febrúarmán-
uði, einn formann og 6 fulltrúa. Skal velja til 2 ára og