Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1909, Page 36

Skírnir - 01.12.1909, Page 36
324 Um starf og stjórn sjúkrasamlaga. áður en þeir eru bornir undir aðalfund í febrúar til sam- þyktar. Fyrir aðalfund í október skal leggja glögt yflrlit yfir tekjur og gjöld samlagsins fyrra helming reikningsársins með árituðum athugasemdum endurskoðunarmanna. Á aðalfundi í febrúar skal velja 2 endurskoðunar- menn og 2 varamenn; fara 2 frá á hverju ári, annar endurskoðunarmaður og annar varamaður, í fyrsta sinni eftir hlutkesti. Þá má endurkjósa. Skorast geta þeir undan endurkosningu eins og fulltrúar, sbr. 10. gr. Endurskoðunarmönnum er heimilt, hvenær sem vill, að rannsaka allar reikningsbækur samlagsins og aðgæta eignir þess, og skulu þeir gera það eigi sjaldnar en einu sinni á hverjum ársfjórðungi. Þá er þeir rannsaka reikn- ingana, ber þeim meðal annars að gæta þess, hvort allar tekjur og útgjöld samlagsins eru i samræmi við þessi lög og samþyktir aðalfunda. Stjórn samlagsins og gjaldkera ber að láta endurskoð- unarmönnum í té allar skýrslur og upplýsingar, er þeir þurfa við rannsóknina. í sveitasamlögum kemur formaður hér alstaðar í stað gjaldkera. 15. gr. Því fé samlagsins, sem ekki er liklegt að til þurfi að taka að sinni, skal koma á vöxtu í öruggan sparisjóð. Aldrei má veita lán úr samlagssjóði. Sjórnin skal aðgæta sjóðseignina og bera saman við bækur samlagsins á ýmsum ótilteknum tímum á hverju ári og láta þess jafnan getið i gerðabók sinni. Það er afaráríðandi að fjármunir hvers samlags séu í góðra manna höndum. Fjársvik hafa því miður alloft átt sér stað i útlendum sam- lögum. Og þó að þeir bæti skaðann, sem ábyrgðina bera, þá skerðist sómi samlagsins og tiltrú manna. 16. gr. I varasjóð skal leggja allan inntökueyri samlags- manna, allan afgang af árstekjum, t. d. æfigjöld hlutlausra

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.