Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1909, Side 40

Skírnir - 01.12.1909, Side 40
Ágrip af upptökum og sögu kvenréttindahreyfingarinnar i Ameriku. m. (Síðasti kafli). Þau lög viðvíkjandi konum, sem Mrs. Stanton barðist mest fyrir, voru hjónabandslögin, eftir »Common law«, sem voru gömul ensk lög. Breytingar á þeim í ýmsum efn- um komu fram hvað eftir annað. I ýmsum ríkjunum fengu giftar konur á árunum 1849—1854 ýmsar breyt- ingar; fyrst fengu þær yflrráð yfir lausafé sínu, og síðar yfir atvinnu sinni. Um 1854 hafði Kvenréttindafélagið ákveðið að senda út tvær áskoranir til þingsins í Albany, aðra um réttar- farslega stöðu kvenna, en hina um pólitískan kosningar- rétt þeirra. Alt var gert til að fá sem flestar undirskriftir, og ýmsir helztu blaðamenn og stjórnmálamenn töluðu með því á fundum kvenna, ásamt konunum sjáifum. Áskor- anirnar voru ræddar í þinginu og settar í nefnd. Mrs. Stanton, Ernestine Rose og William Channing fengu leyfi til að tala við nefndina og færa ástæður fyrir máli sinu. Þá var þar komið, sem faðir Mrs. Stanton hafði bent henni sem barni á, að tala máli kvenna fyrir þinginu í Albany. Sjálf segist hún aldrei, hvorki fyr né siðar, hafa fundið til slíkrar ábyrgðar þegar hún átti að tala, og ekki þótt það væri á fjölmennum þjóðfundum. Þegar faðir hennar heyrði, að hún ætti að tala í þing- inu, bað hann hana að lofa sér að heyra ræðuna. Þegar

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.