Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1909, Page 43

Skírnir - 01.12.1909, Page 43
Kvenréttindahreyfingin í Ameriku. 331 ton. Með henni störfuðu tvær aðrar konur með óþreyt- andi dugnaði og sjálfsafneitun. Það voru þær Dorothea Dix og Mary A. Brokerdyke — »móðir hermannanna*. Hér er því miður ekki rúm til að lýsa því, hvernig þessar þrjár konur lögðu líf og velferð í sölurnar til þess að geta hjálpað löndum sínum. í byrjun ófriðarins var öll hjúkrun hersins í mesta ólagi. Alt vantaði: Umbúðir, matvæli, spítala, föt, lækna, hjúkrun, ljós og alt, sem á þurfti að halda. Clara Barton var iífið og sálin i í því að koma þessu í lag. Sjálf stóð hún oft svo nærri bardögunum að skotin dundu hvarvetna í kringum hana. Heiman að komu ógrynnin öll til hersins af alls kon- ar hlutum, matvörum, fötum, umbúðum, peningum. í’jöldi kvenna seldi skartgripi sína til þess að kaupa vopn og vistir handa hernum. — Stjórnin komst brátt til viðurkenn- ingar á því, hvað samhjálp kvennanna væri nauðsynleg. Læknarnir urðu fegnir að fá aðstoð þeirra. Fjöldi beztu, gáfuðustu og mentuðustu kvenna komu sem sjálfboðalið til að stunda sjúklingana. Clara Barton gjörði alt til að bæta úr tilfinnanlegasta hjúkrunarskortinum. Hún keypti það nauðsynlegasta fyrir eigið fé, þegar fé vantaði, og útbýtti matvælum, umbúðum, fötum og peningum, sem konur sendu til hennar að heiman. Að loknu stríðinu fekk hún svo margar fyrirspurnir heiman að frá ættingj- um hermannanna, um þá, sem vantaði og ekki stóðu á dánarskránum, að hún samdi lista yfir þá, stofnaði svo auglýsingaskrifstofu í Washington, og útvegaði alla fáan- lega vitneskju um þessa menn. Þannig gat hún haft upp á fjöldamörgum, sem annaðhvort lágu veikir hingað og þangað eða voru í fangelsi í Suðurrikjunum. Margir voru dauðir af sárum. Hún yfirfór allar skýrslur og var óþreyt- andi, þeim var hlynt að, sem særðir voru, ,þeim sem i fangelsum voru, var skift fyrir aðra fanga úr Suðurríkj- unum o. s. frv. Dorothea Dix fylgdist einnig með henni og vann af öllum mætti að því að bæta hjúkrunina og lina fangelsis- vistina, sömuleiðis að bæta siðferði hermannanna og koma í

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.