Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1909, Page 51

Skírnir - 01.12.1909, Page 51
Kvenréttindahreyfingin i Ameríku. 339 En ekki voru allar konur fylgjandi þessum málum. Arið 1869 fengu konur pólitískan kosningarrétt í Wyoming; þá sendu 200 konur áskorun til þingsins í Massachusetts, og réðu því frá að veita konum þessi réttindi. Síðar stofnuðu konur í Boston »Anti«-kvenréttindafélag. 1871 sendu konur Shermans yfirherforingja, og Dahlgrens yfir- foringja sjóliðsins áskorun frá 1000 konum, sem segja, að þótt þær hrylli við að koma opinberlega fram, þá neydd- ust þær þó til þess, vegna þeirrar hættu, sem stafi af þess- ari breytingu á borgaralegum og pólitiskum kjörum kvenna, og af því að heilög ritning setji þeim aðrar og æðri skyldur. — Þær leggja einnig til, að í stað þess að veita konum kosningarrétt verði samskonar hjónaskilnað- arlög ger fyrir öll Bandaríkin, sem nemi skilnaðarleyfi úr lögum, nema þegar annað hjónanna hafi brotið, og að því sé þá ekki leyfilegt að gifta sig oftar, meðan hitt lif- ir. Báðum þessum konum var boðið að mæta á aðalfundi kvenréttindafélagsins i Washington. En þær neituðu því vegna þess að konur ættu ekki að taka þátt í opinberu:u ræðuhöldum. Vísuðu að eins til blaðagreina sinna, sem þær álitu auðsjáanlega ekki heyra undir »opinbera« framkomu. Þær brutu þó á móti þessum meginreglum með því þær mættu á þinginu til að tala móti 16. grein stjskr. og vitnuðu þar mest til ráðstöfunar guðs um verk- svið konunnar, og heilagleik hjónabandsins. I mörgum ríkjum Bandaríkjanna fylgdu konur áskor- un kvenréttindafélagsins og létu setja sig á kjörskrá sem kjósendur ef það fekst. Víða voru þær gerðar afturræk- ar þegar á kjörskránni, en sumstaðar við atkvæðagreiðsl- una. Á stöku stað var þeim leyft að kjósa en atkvæði þeirra ónýtt á eftir. Víða var þessum málum skotið til dóms og laga. I Columbia kröfðust 70 konur að kjósa. Þegar þær fengu það ekki, höfðuðu þær mál gegn kjörstjórninni fyrirfylk- isdómstólnum. Því var skotið til hæstaréttar Bandaríkj- anna, sem dæmdi, að eftir 14. grein hefðu konur hæfi- 22*

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.