Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1909, Page 59

Skírnir - 01.12.1909, Page 59
Að verða úti. Fyrirlestur fluttur á Akureyri 1909. í hvert skifti, sem hann alt í einu skellur á með kafdimmri snjóhríð og hörkuveðri, eins og oft vill verða í skammdeginu á veturna, þá verður margri konunni órótt, sem veit af manni sínum eða sonum einhverstaðar á ferð; og óróinn vex bæði í brjósti hennar og annarra heimilismanna, þegar heimkoman dregst og ekkert heyrist nema óveðursýlfrið í Kára, þegar hriktir í hurðum og gluggum og kaldan næðinginn leggur inn bæjargöngin. — Hafa þeir komist til bæja eða — hafa þeir orðið úti? Þessar tvær spurningar eru efst í huga allra, því vana- lega er að eins um þetta tvent að ræða. En seinni spurn- ingin er flestum svo ógeðfeld að þeir kveinka sér í lengstu lög við að koma með hana fram á varirnar. — Vér íslendingar eru orðnir því svo vanir að heyra fréttir um menn, sem orðið hafa úti í illviðrum á veturna, að í hvert sinn er stórhrið heflr slotað, þá er sú spurning efst á baugi og gengur mann frá manni: ætli engum hafi hlekst á í hríðinni þeirri arna? Það er ekki að ósekju, að landið okkar heflr hlotið nafnið ísland, því að hér er sannarlega nóg af ísi og snjó og því ekki að undra þótt kuldinn sé mikill með köflum. Það mun óhætt að fullyrða, að fáar mentaðar þjóðir í heiminum eiga við jafnillúðuga, óstöðuga veðráttu að stríða og vér íslendingar. Og þegar nú hér við bætist hrjóstrugt, vegalítið en viðáttumikið land, þar sera langar

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.