Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1909, Page 60

Skírnir - 01.12.1909, Page 60
348 Að verða úti. leiðir eru milli bygða og jafnvel milli bæja, þá sýnist engin furða, þótt menn verði úti fremur hér en annarstaðar. Hve algengt er það nú að menn verði úti hér á ís- landi ? Svarið fáum vér, ef vér lítum í Skýrslur um lands- hagi á íslandi (1906). „Á síðustu 20 árum hafa 116 manns orðið úti á öllu landinu, og sýna skýrslurnar að á jafnlöngum tímahilum verði jafnmargir úti og ennfremur að hlutfallið milli karla og kvenna, er verða úti, er eins og 5:1 eða að fyrir hverja fimm karlmenn er týna lifinu á þann hátt, verður úti einn kvenmaður. Á siðastliðnum 20 árum hefir ekki fækkað þeim sem árlega verða fyrir þessum dauðdaga, þó ætla mætti að svo hefði verið þar sem vegir hafa hatnað stórum, fjallvegum ’fjölgað og vörður og sæluhús hafa verið reist á fleiri stöðum en áður. Að meðaltali verða árlega úti 6—7 manneskjur og þó undarlegt sé, virðist sú tala vera nokkurn vegin jöfn á jafnlöngum tímabilum eins og áður er ritað: Ar 1881—1890 urðu úti að meðaltali — 1891—1900 —-----------------— — 1901—1905 —-----------------— — 1906 — — — — — 1907 — — — — 5 karlar 1 kona ó>4 l>i 5,2 — 1 — 5 — 1 — 4 — 0 — Þvi miður vantar skýrslur um, hversu margir urðu úti fyrir meir en 20 árum siðan og er því ekki hægt að segja með vissu, hvorl þessi dauðdagi sé tíðari nú en i gamla daga, en að ekkert hefir hreyzt til batnaðar á siðustu 20 árum bendir á að um langan aldur hafi tala úti- orðinna haldist nokkurn veginn jöfn“. Að verða úti hefir á voru máli fengið sömu þýð- ingu og að d e y j a ú r k u 1 d a úti undir berum himni. Eg segi deyja úr kulda, en ekki helfrjósa — af því að það kemur fyrir, þó sjaldgæft sé, að menn verði úti, þó kuldinn nái ekki frostmarki og mun eg síðar drepa á það nánar. Það kemur sjaldan fyrir að menn verði úti nema á vetrum. Á sumrin er sjaldgæft að veðrátta sé svo dimm. að menn flnni ekki leið til mannabygða. Auðvitað eru margir staðir hér á landi þar sem vetrarhörkur og illviðri eru algeng einnig um hásumartimann. t. d. uppi á jökl- um inni í landinu, en þangað hætta menn sér ógjarna

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.