Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1909, Page 67

Skírnir - 01.12.1909, Page 67
Að verða úti .'(05 vanda lokið, því að líkaminn er lengi að ná sér aftur og verður að njóta góðrar hvíldar. Kalsár eru lengi að gróa og þurfa nákvæma hirðingu, til þess að þau ekki spillist og eitri frá sér. Hvers vegna verða menn úti ? Sumum mun virðast sem spurningunni sé þegar svar- að með því sem á undan er ritað, og að menn verði úti af því að þeir villast og verða fyrir áhrifum kulda og þreytu þangað til kraftarnir þverra. En spurningunni er ekki fullsvarað með þessu. Margir hafa vilst i stórhríðum, og legið þreyttir úti i kuldanum, án þess að verða úti, og án þess nokkuð að verða meint við. Því að það má koma í veg fyrir að bæði kuldinn, villan og þreytan verði að meini. Eins og áður er skrifað, þola menn að vera úti í kulda, sem nemur 70° C. Með góðum útbúnaði má úti- loka kuldaáhrifin. Með leiðarvísi kompássins máoft koma í veg fyrir að villast; en þó menn villist, á það ekki að þurfa að koma neinum að klandri, ef þess er einungis gætt, að láta ekki villuna þreyta sig. Því að þreyta í sambandi við kulda er það, sem verður mönnum að fjörlesti. Þeir villast í dimmviðrinu og þreytast í ófærðinni, þegar þeir eru að reyna að komast á rétta leið. En þetta er rangt. I kafdimri snjóhríð eiga menn ekki að þreyta sig á því að villast fram og aftur, heldur eiga þeir að halda kyrru fyrir, og láta snjóinn hlúa að sér. Þegar vér lesum ferðabækur Friðþjófs Nansens, »Paa Ski over Grönland« eða »Fram over Polarhavet«, og íhugum þá örðugleika, sem hann og félagar hans hafa yfirstigið, þá liggur oss við að halda, að það sé í rauninni ófyrirgefanlegur klaufaskapur að verða úti. Þær stórhríð- ar, sem Nansen hvað eftir annað lenti í, voru svo margfalt stórkostlegri en þær, sem tíðkast hér á landi og frostið náði margoft því hámarki, sem ekki þekkist hér. A Græn- landsjöklum kom það oft fyrir, að skafbylurinn var svo þéttur og snjókoman svo mikil að þeir grófust í fönninni, 23*

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.