Skírnir - 01.12.1909, Page 79
Erlend tiðindi.
Norðurferðirnar. Sú frétt kemur frá Danmörku 21. des-
ember, að ekkert só í skjölum Cooks, sem sanni það, að hann hafi
komist að norðurskauti, eins og sagt var frá í útlendum fréttum
8Íðast. Þess var þá getið, að Cook ætlaði að senda Kaupmanna-
hafnarháskóla plögg sín og skilríki fyrir því, að hann hefði sagt
satt til um farir sínar og fundi.
Háskóli Kaupmannahafnar hafði gert Cook að heiðursdoktor
og lagt, í rauninni með því úrskurð á trúleik hans, og er nú við
því búið, að háskólanum verði lagt þetta út til fljótfærni, svo að
það gæti dregið úr áliti hans, En til þess getur varla komið. Há-
skóli Kaupmannahafnar er vel metinu um allan heim og hann er
einmitt mörgum fremri að því, að hann hefir veiið vandur að
metorðagjöfum síuum og þeir hafa oftast reynst nýtir meun,
sem sá háskóli hefir gert að doktorum eða heiðrað á ann-
an veg.
Hór er þess að gæta, að vísindastarf manna er svo alvarlegt,
að oftast ætti að vera óþarft, að tortryggja orð manna um fundi
þeirra eða rannsóknir, svo lengi sem engin sök er fundin hjá þeim.
Hér virtist engin orsök hjá háskólanum danska til að véfengja dr.
Cook og frásagnir hans, og þó að sóður svikari gæti tælt háskól-
ann, þá minkar það ekki önnur verk skólans, þótt skemtilegra
hefði verið og æskilegra, að hann hefði farið varlegra hér.
Nú hefir háskólinn snúist róttilega og vel við þessu; hann
hefir sagt eins og er, að engar sannanir sé hjá dr. Cook; en þess
er líka að gæta, að hann hefði getað verið 2 sólarhringa á pólnum
fyrir því, þó hann gæti ónógar sannanir komið með fyrir veru
sinni þar; en ef háskólakennararnir hafa lýst því að Cook só óreiðu-
maður, þá getur maður verið fullviss þess, að þeir hafi ekki kveðið
þann dóm upp fyrr en þeir höfðu vegið öll rök nákvæmlega, þar
sem þeir voru búnir að heiðra hann áður. Við bíðum því enn nán-
ari frótta, en sennilegast að svik só í tafli hjá Cook.