Skírnir - 01.12.1909, Qupperneq 80
368
Erlend tiðindi.
Danmörk. Þess var getið síðast að ráðuneyti Holsteins
Hleiðrugreifa var sett á laggirnar og mátti að vísu við því búast,
að það yrði langlífara en rauu varð á, því bæði hafði hann bjarg-
að Dönum út úr fáránlegum ráðaneytisvandræðum, leitt hervirkja-
málið til lykta, og svo er Holstein greifi bæði vellauðugur og
mikilhæfur maður. Þetta fór þó á alt annan veg, því 21. október
lysti þing Dana vautrausti sínu á ráðuneytinu og sagði þá Hol-
steiu þegar af sór ráöherrastörfum. Kom þetta öllum óvænt.
Tildrög þessa voru þau, að Holstein greifi þóttist í þingræðu
sinni einskis styrks hafa notið frá flokk hægri manna, er hann
myndaði ráðuneytið, hvorki hafa um hánn beðið eða þarfnast hans
og gerði fremur lítið úr flokki þeirra. Hægrimeun höfðu litið á
þetta alt annan veg. Eftir því sem milligöngumenn höfðu sk/rt
þeim frá, hafði Hollstein bæði leitað fylgis þeirra og sett ákveðin
skilyrði frá sinni hálfu, sem hægrimenn gengu að mestu að, þó að
þeim tæki sárt að slaka svo mjög til í landvarnarmálinu sem þeir
gerðu. I'rátt fyrir alt þótti þeim sem nauður ræki til þessa, því
antiars var engin s/nileg leið til þess að ráða landvarnarmálinu til
lykta, er þingt'lokkar voru svo mjög suttdraðir. Flokkutinn áleit,
að Holstein hefðí myndað ráðuneytið með styrk hægrimanna og
kornið landvarttarmálinu einkum fram fyrir lipurð og tilslökun
þeirra. Kon.u þeim því ummæli hans óvænt og grömdust þau
mjög. Leituðu talsmenn þeirra á þingi að miðla málum og fá
Holstein til þess að draga úr ummælum sínum, en móti von þeirra
sveigði hann hvergi til, svo ætla má, að hontim hafi verið ókunn-
ugt um álit og ráðagjörðir hægrimanna, er 'ráðuneytið komst á.
Hafa þá milligöngumennirnir valdið þessum misskilningi öllum.
Hvernig svo sem þessu er varið þá urðu hægrimenn æfir, gengu i
bandalag við jafnaðarmenn og gjörbótamenn og samþyktu van-
traustsyfirlysingu með meiri hluta atkvæða.
Allar horfur voru á því, er þessi óvæntu vandræði bar að
höndum, að ekki gengi nú betur með ráðuneytisskipunina en fyr.
Enginu þingflokkur hafði svo yfirtökin, að einfær væri um að
mynda n/tt ráðuneyti, svo alt virtist ætla á ringulreið, sem ekki
yrði ráðið fram úr nema með þingrofi og n/jum kosningum. Það
greiddist þó fljótar úr þessu en á horfðist og næsta ólíklega, því
27. október komst nytc ráðuneyti á laggirnar og það úr fámenn-
asta þingflokknum, flokki gjöibótamanna, sem ekki hafði nema
einum 15 hræðum á að skipa á þingi. Foringi flokksins, mála-
flutningsmaður C. Th. Zahle, varð forsætisráðberra og valdi hann