Skírnir - 01.12.1909, Page 89
Erlend tíðindú
37T
hann hafði látið opinberlega í ljósi, að getnaður Maríu meyjar væri
ekki sarakvæmur reynslu raanna. Þessi íhaldssemi var Svíum víða láð.
Ýmislegt Leifar af fornri staurabyggingu
steinaldarmanna, ekki jngri en 4000 ára, fundust við Yettern í Sví-
þjóð, steinvopn, áhöld o. fl.
Cesare Lombroso, prófessor við Túrínarháskóla, geð-
veikislæknirinn heimsfrægi, lóst í október.
K ó 1 e r a var í Pétursborg alt sumarið og fram á vetur ; dóu
þar suma daga 30 og 40 manna. Víðar var hún á Rússlandi og
barst þaðan til Hollands, Þ/zkalands og Belgíu, og þar var hún
ennþá 27. okt., en kvað lítið að á þeiui stöðum öllum.
Landskiálftar hafa orðið ákaflega tíðir í sumar og haust
víðs vegar um alla jörðina.
Um Suðurfrakkland, Norðurafríku og um Miðasíu voru
þeir í júní, en fremur vægir, en ákafir 1. júlx á Suðurítalíu og
hrundi þá mest það, sem upp hafði verið bygt af Messínaborg og
meiddist fjöldi og dó, en hitt flest fl/ði. Miklir landskjálftar á
Grikklandi um miðjan júlí og hrundu mörg hundruð hús og drápu
menn og meiddu. í Mexikó gengu ákafir landskjálftar s/ðast í júlí
og í ágúst í Japan, og svo í Lissabon 17. ág., en vægur; á Grikklandi
og Ítalíu 22. sept., en á Indlandi og Sikiley 22. okt. og snarpir á
báðum stöðum, og fleiri landskjálftar urðu síðara helming ársins,
en minna kvað að þeim flestum.
Þorsteinn Erlingsson.