Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1909, Side 90

Skírnir - 01.12.1909, Side 90
ísland 1909. Þing o g s t j ó r n. Þing stóð yfir frá 15. febrúar til 8. maí •og varð þannig hið lengsta, er sögur fara af. — En það tafði nokk- uð fyrir störfum þingsins, að ráðherraskifti urðu eftir þingsetningu. 23. febrúar var samþykt vantraustsyfirlýsing á hendur Hannesi ráðherra Hafstein í neðri deild þings, og er meiri hluti efri deild- ar hafði lýst því yfir, að hann væri þeirri yfirlýsingu samþykkur, bað ráðherra. meiri hluta þingsins að tilnefna eftirmann sinn. Það var gert 24. febrúar, og var til nefndur Björn Jónsson ritstjóri, þingmaður Barðstrendinga. Því næst símaði ráðherra lausnarbeiðni sína til konungs og svo það, hvern þingið benti á til þess að taka við ráðherrastöðunni. — En 28. febrúar kemur svar konungs þess efnis, að hann boðar á sinn fund alla forseta þingsins, þá Björn Jónsson, forseta í sam. þingi, Hannes Þorsteinsson, forseta n. d. og Kristján Jónsson forseta e. d., til skrafs og ráðagerða. Fóru þeir utan 21. marz, en 30. marz skipaði kor.ungur Björn Jónsson ráð- herra. Á páskadagskvöld (11. apr.) kom ráðherra og forsetarnir tveir •með honum, aftur til landsins, og var þá strax eftir páskana tekið til óspiltra málanna á þingi. — Þingstörf höfðu gengið tregt til iþessa. Aðalhlutverk þingsins átti að vera, að skera úr því, hvert samband íslands og Datimerkur ætti að vera, svo að islenzka þjóðin mætti vel við una. — Stjórnin hafði iagt fyrir þingið sambandslagafrumvarp millilandanefndarinnar óbreytt, og fyr- ir því varð Hannes Hafstein að víkja úr ráðherrastöðunni. Enda voru gerðar svo gagngerðar breytingar á því frumvarpi, að ekki einu sinni nafnið varð sameiginlegt með því og frumvarpi því, sem þing- iið samdi. Þetta frumvarp þingsins varð ekki samþykt til fullnustu fyr en 7. maí, og skal hór ekki lagður neinn dómur á úrslitin. Tvö önnur þýðingarmikil lagafrumvörp samþykti þingið: um

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.