Fréttir frá Íslandi - 01.01.1887, Síða 30

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1887, Síða 30
32 Arferði. yfir Öksnadalsheiði o. v.) og fjöldamargar jarðir skemdust að meiru og minna leyti í Eyjafirði (t. d. í Svarfaðardal að sögn 17 jarðir) og í Skagafirði; hljóp ómuna-ílóð í Héraðsvötnin ; skriður féllu par og stórkostlega, einkum í Heiðardal, og eins austantil í Húnavatnssýslu. Sumstaðar tóku skriður þessar af hús, fénaðarhús og urðu skepnum að bana. Haustið var upp frá pví gott víðast um land: stillur, frost og fannkoma lítil, og stóð sú tíð að mestu fram til ársloka ; pó var frosthart nyrðra (t. d. 14—16” R. í pingeyjarsýslu um miðjan nóv. og um 20° C. í Eyjafirði í desbr.) og óstöðug veðrátta (einkum fyrri hluta desbr.) með snjóburði, enn skánaði seinni hluta mánaðarins. Eldgos póttust menn verða varir víð úr Vatnajökli síðari hluta sumars, enn engin brögð urðu pó að pví.—Jarðskjálfta varð aftur vart við að mun; fyrst 27. febr. í Reykjavík, pó lin- an kipp einn; enn 23. okt. varð jarðskjálfta vart víða um land ; urðu einkum mörk að honum á Reykjanesi. I Valahnjúk, sem vitinn stendur á, komu 3 eða fleiri sprungur fáar álnir frá vitanum og hrundi nokkuð framan úr, og 9 glös í vitanum sprungu áður enn slökt varð. 13. nóv. varð aftur vart jarð- skjálfta par og skömmu síðar hrundi 7 faðma langt stykki framan úr hnjúknum örskamt frá vitanum. Grasvökstur var alment talinn í betra lagi og ágætur sunnanlands og nýting varð góð yfir höfuð ; enn hey drap mjög, einkum norðanlands, í haustrigningunum og lá við skemd- um og brann sumstaðar, enda nokkuð djarflega hirt að venju í upphafi. Eldiviður náðist seint sökum júní-rigninganna og fiski hélt pá við skemdum. Skepnuhöld urðu hin verstu norðanlands og vestan, svo að jafnað var til ársins 1882; olli pví mestmegnis heyafli hins liðna árs, er bæði var lítill, enn reyndist par á ofan afar- illa að gæðum: heyin bæði skemd, óholl og létt, og heyásetn- ing afardjörf allviða, eins og vant er ; var sagt, að jafnvel í jan. væri farið að skera fé sökum heyþurðar á nokkrum stöð- um í Aksarfirði og á Sléttu og í mars var í Dölum vestrafar- ið að sækja korn í kaupstaði til skepnufóðurs sökum heyleysis, enda var í frásögur fært, að í miðþorra (febr.) átti einn bóndi par 1 faðm útheys fyrir 100 fjár og 11 hesta. í Eyjafirði

x

Fréttir frá Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.