Fréttir frá Íslandi - 01.01.1887, Síða 31
Arferði.
33
varð smásíld mönnum og skepnum til bjargar um veturinn ;
hún aflaðist par mjög síðari hluta vetrar og var gefin kúm,
hrossum og kindum ; var tunnan seld á 1—1,50 kr. 1 apríl
vóru hej mjög víða algjörlega uppi fyrir sumarmálakastið, og
pegar pað skall á, varð fénaður sumstaðar nyrðra og vestra að
standa á svelti í húsunum, pvíað engri skepnu var úthleyp-
andi; kýr vóru sumstaðar fóðraðar eingöngu á hrísi og mjólk-
urdreitlinum úr sjálfum peim. A einum bæ í Húnavatnssýslu
féllu pá pær 50 kindur, sem eftir lifðu af 150; hinar höfðu pá
litlu áður verið skornar af heyjum; verst var pó talið ástandið
í Geiradalshreppi vestra, peim er síðar sótti um 3000 kr. hall-
ærisgjöfina til alpingis, í Laksárdal og Haukadal; féllu pá hross
og einkum gemlingar; annars drápust gemlingar víða, pótt ekki
væri úr hor: drógust upp úr lungnaveiki og alls konar torhöfn.
J»ó versnaði um allan helming, er uppstigningardagshretið kom;
féll pá allur fénaður unnvörpum vestra, nyrðra og jafnvel eystra,
pó mest í Skagafjarðar- og Húnavatnssýslum og enn fremur í
Strandasýslu og Dalasýslu, bæði úr hor og beinlínis sökum
veðurgrimdarinnar, sem áður er frá sagt; var svo talið í skýrsl-
um um fellinn frá nýári í Húnavatnssýslu, er sýslunefndin lét
safna til, að drepist hefði um 11000 sauðfjár, 60 nautgripir og
og 337 hross; líkur var fellirinn talinn í skýrslum í Skaga-
fjarðarsýslu; enn aðgætandi er pó, að í pessum skýrslum töldu
margir alt, sem peir höfðu mist allan veturinn, úr hverju sem
var, og jafnvel var talið, að sumir hefðu ýkt um missi sinn, eins
og líka hitt, að sumir hefðu dregið dulur á hann skömmustu
vegna.—Miltisbruna varð að nýju vart á Skáney í Borgarfirði,
er geisað hafði par fyrir 14 árum ; sömuleiðis á 2 bæjum í
Húnavatnssýslu og í Mýrarhúsum á Seltjarnarnesi; par var
rækileg ráðstöfun gerð til að eyða sóttnæminu.
V. Bjargræðisvegir.
Bjargarleysi og vandræði. — Sjávarútvegur og fiskveiðar. — Landbúnabur.
Verslun og vöruverð. — Bindindishreyfingin.
J>ar sem skepnuhöldin urðu slík og nú var talið, vóru
ekki tiltök, pó að kvartað væri um bjargarleysi og vandræði
Fréttir frá Islandi 1887. 3