Fréttir frá Íslandi - 01.01.1887, Síða 42
44
Heilsufar og lát heldri manna
á Akureyri, enda varð þar manndauði venju framar. (Sbr. enn
fremur bls. 34 að framan).
Lát heldri nianna. J>essir prestvígðir vienn létust á
árinu:
Hjörleifur uppgjafaprestur Quttormsson (prófasts J>orsteins-
sonar að Hoíi í Vopnafirði), fæddur að Hofi 31. maí 1807, út-
skrifaður úr Bessastaðaskóla 1832, vígður 1835 sem aðstoðar-
prestur til séra Björns Vigfússonar á Kirkjubæ og kvæntist
Guðlaugu dóttur hans; fékk Skinnastaði 1849 og TjörníSvarf-
aðardal 1870 og síðast Velli 1878, enn fékk lausn frá prest-
skap 1884 og andaðist að Lóni í Keldubverfi hjá tengdasyni
sínum 1. ágúst.
Jbn Jónsson (bónda Björnssonar að Gilsá í Breiðdalsbreppi)
Austmann, f. 9. okt. 1809, útskrifaður úr Bessastaðaskóla 1838,
kvæntur 1840 Málfríði Guttormsdóttur (próf. Pálssonar í Valla-
nesi) og bjó að Gilsá til 1847, er hann vígðist sem aðstoðar-
prestur séra Stefáns pórarinssonar á Skinnastöðum, enn varð
prestur að Lundarbrekku í Barðardal sama ár; þaðan fluttist
hann að Saurbæ í Eyjafirði, er hann fékk 1872, enn þaðan
aftur að Stöð í Stöðvarfirði 1881 og þar lést hann 6. septbr.,
þá fyrir skömmu kominn úr ferð frá Khöfn í lækningaleitun;
annars var hann sjálfur einkum kunnur sem heppinn læknir,
enda skipaður læknir norðanlands af amtmanni um tíma.
Seinni kona hans, Helga Jónsdóttir frá Sörlastöðum, lifði hann,
Hann gekst fyrir, að þvdd var á íslensku »homöopathisk lækn-
ingabók« (sjá Fr. 1882, bls. 38).
Jón Eiríksson (hreppstj. og dbrm. [f 1844, 82 ára] Sveins-
sonar að Asi í Holtum í Bangárvallasýslu og Guðrúnar, seinni
konu Eiríks, Jónsdóttur, systur Steingríms byskups), f. að Asi
1807, útskrifaður af séra Helga Thordersen í Odda 1827 og varð þá
skrifari Magnúsar sýslum. Stephensens í Vatnsdal, enn var vígður
1834 sem aðstoðarprestur séra Brynjólfs Árnasonar í Meðal-
iandsþingum, fékk Stórólfshvolsþing 1839 og Stóranúp 1859,
fékk lausn frá prestskap 1880 og andaðist 4. mars hjá Sigurði
syni sínum, bónda í Hrepphólum. Kona hans var Guðrún
Pálsdóttir prests (drukkn. 14. sept. 1823) Ólafssonar 1 Gutt-
ormshaga, systir Olafs dómkirkjuprests.
Jón Kristjánsson (dbrm. Jónssonar, bróður Björns í Lundi),