Fréttir frá Íslandi - 01.01.1887, Síða 53

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1887, Síða 53
Mentun og menning. 5o Fornleifufélagið átti rúmlega 300 kr. í sjóði petta ár; þó hefir það með landsfjárstyrknum stutt að ferðum varafor- manns félagsins, Sigurðar Yigfússonar, undanfarin ár í forn- menjaleitir og fornmenjarannsóknir, sem hafa haft töluverðan árangur, einkum fyrir rorngripasafn Islands; mesta athygli hefir vakið fundur Sigurðar 1883 og 1885 í rústum að Berg- þórshvoli ; það vóru ýms hjáleit jarðefui, og komst danskur efnafræðingur, V. Storch, að þeirri niðurstöðu eftir langa og nákvæma (kauplausa) rannsókn þetta ár, að þau væru leifar af mjólkurefnum (skyri og ef til vill osti), sem orðið hefðu fyrir um 100" hita; var þetta því ugglaust talið menjar frá Njáls- brennu. Sigurður hafði fengið keppinaut í gripasöfnun, þar sem var Arthur Feddersen, er ferðaðist hér um land að fyrir- lagi alþingis vegna laksveiðanna ; dró hann þá að sér gripi allmarga eldri og yngri úr landinu og kom þeim til sýnis í Danmörku þetta ár og ritaði loflega um þá í danskt tímarit (Tidskrift for Kunstindustri). — Forngripasajninu áskotnaðist ekki neinir sérlega merkir munir þetta ár, enn lét þar á móti af hendi við forstöðunefnd ArnaMagnússonar safnsins í Khöfn þau 14 skinnblöð úr Hauksbók, er því höfðu verið gefin af erfingjum dr. Hallgr. Schevings, enn dr. Jón j>orkelsson rektor gaf út fyrir bókmentafélagið 1865. — Alþingi jók nú fjártillag- ið til forngripakaupa, eins og áður er sagt (bls. 10) og ætlaði nú fornleifafélaginu 300 kr. á ári í fjárlögum, líkt og það hefir áður fengið hjá landshöfðingja. Fornleifafélagið gaf þetta ár út árbók sína fyrir 1886 með ýmsum ritgerðum, flestum eftir Sigurð Vigfússon, eins og vant er. —j>orvaldur skólakennari Thoroddsen ferðaðist þetta ár um Yestfirði alt í Suðurfirði, og síðan kring uin ísafjarðardjúp og um Grunnavíkur og Sléttuhreppa. Kom nú út ferðasaga hans um Vestfjörðu árið áðurí þessa árs Andvara. júngið veitti honum sama styrk og fyr til ferðalags og rannsókna o. s. frv. Bökagerð var lítil þetta ár umfram það, er nú er talið. Blöðin vóru þau sömu, nema 2: »Suðrit, er sá eigi þetta ár; var ritstjóri blaðsins, cand. ph.il. Gestur Pálsson, þá orðinn eig- andi þess, enn blaðið óvinsælt. »Stjórnarvalda-auglýsingarnarc, er teknar höfðu verið af »j>jóðólfi« til handa Suðra vóru nú settar í ísafold. Hitt var »Próði«, blað mótmælenda stjórn-

x

Fréttir frá Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.