Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1908, Blaðsíða 4
6
Þessar búðir sýnir mynd II, c. Graflð var niður í botn, niður að
óhreifðum leir og svo langt út til hliðanna, að komið var í óhreifða
mold eða vegg. Þá komu mishá gólf í ljós eða það sem benti á gólf,
svo sem eldstæðisholur; í B-herberginu fundust 4 gólf mishá, og
efalaust hafa þau jafnvel verið fleiri.
Hvergi fundust neinar menjar þess, að þar hefði verið grjót eða
steinar í veggjum, undir súlum eða þess háttar. Alt heflr verið
tómt torf, og veggirnir hafa ekki verið nema nokkurra feta háir.
Þetta sýnir, að hér heflr ekki verið um hús að ræða, er ætluð voru
til að dvelja i á vetrum, heldur bendir alt til þess, að hér hafi ekki
verið búið nema á sumrum, og að þökin hafi ekki verið úr öðru
efni en vaðmáli, eða með öðrum orðum, það er ljóst, að hér hefir
að eins verið um búðir að ræða með sömu gerð og sömu tegundar
sem t. d. þingbúðir og þess konar, er ekki voru notaðar nema
skamman tíma. Alt bendir ennfremur á, að sama búðin hefir öld
eftir öld verið notuð af einum eftir annan, þannig að sá sem eftir
kom hefir ekki gert sér far um að hreinsa búðina og moka út mold,
er inn hefir fallið úr veggjunum, heidur hefir nýtt gólf myndast
ofar en hið gamla — og búðarbotninn svo smáhækkað; þetta sést
og af öskudreifum, er fundust hér og hvar og mishátt. í þessari
aðalbúð, sem grafin var, fanst aska víða og einkum í einu herberg-
inu (syðra, sem nær var sjó), en þar fundust þó engar hlóðir; þar
á mót fundust reglulegar smáhlóðir (3 steinar) í annari búð, sem
grafið var i, miklu norðar, og svo hefir það verið alstaðar. Annars
hefir öskunni sjálfsagt verið fleygt út í sjóinn, því að öskuhaugar
sjást livergi í nánd. Hvort sama búðin hefir alt af verið bygð ár
eftir ár, er nú ómögulegt að segja. Hafi sami kaupmaðurinn komið
oft og árum saman, hefir hann líklegast bygt sömu búðina, en annars
hefir hver getað tekið sér þá búð, sem hann vildi í hvert sinn.
Svo sem sjá má af 7. myndinni hafa 4 herbergi verið utan um
einn gang (eða göng) í líkingu við bæjarhús; til þeirra heyrir og
eflaust sérstakt herbergi með sérstökum inngangi (E); hvort fleiri af
þeim, sem í nánd eru, hafa heyrt til þessari aðalbúð, verður eigi
sagt með vissu. Annars er einungis þess að geta, að í 2 af her-
bergjunum (B og E) fundust lög af smáum steinum (smáhellum),
yfir nokkrum hluta gólfsins. Annars fundust engir munir eða því
líkt, nema einstöku dýra og fuglabein; á öðrum stað fanst brýni
allofarlega í jörðu.
Vörur kaupmannanna hafa eflaust verið geymdar í sumum af
þessum herbergjum, einkum þær sem bezt varð að fara með og ekki