Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1908, Blaðsíða 45
47
stöfum; hún er í 7 línum á efra helmingi steinsins, — um 50 sm.
auðir að neðanverðu. Ef til vill hefir hún átt að verða lengri, en
ekki orðið af. Stafhæð 4,5—5 sm. Áletrunin er enn fullskýr, nema
fremstu tölurnar í ártalinu, einkum 6, eru óskýrar fremur. Orða-
skil eru táknuð með litlum krossi í 1. og 5. 1. (milli SON og I).
Á milli I og GVDE (5. 1.) er ekkert bil eða merki, en á milli ANNO
og 1648 er lítið autt bil, og getur verið að þar hafi verið lítill
kross, en hann marist og slitnað af. í ANNO eru ennin saman-
dregin. Rithátturinn að öðru leyti hinn venjulegi þeirra tíma. —
Eignarfallsendinguna (S) í föðurnafninu vantar; hefir það orsakast
af því hve mörgum samhljóðendum hér lendir saman og að næsta
orð byrjar á s-hljóði (SON)1)-
HIER+HVILER
VNDER
ÞORLEIFVR
HALLVARD
SON+IGVDE
SOFNADVR
ANNO 1648
Það er:
Hjer hvíler under Þorleifur Hallvarðfsjson, í guði sofnaður
anno 1648.
l) Nu er þessu eignarfallsmerki slept einungis þá er nefnifallið endar líka á essi,
og son skeytt aftan við; t. d. af Magnús, ef. Magnúss, en Magnússon.
Matthías Þórðarson.
»