Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1908, Blaðsíða 15
17
5. I Belgsholti.
I túninu í Belgsholti, skamt fram undan bænum, er kringlóttur
hringur, nær 8 faðm. í þvermál, og er ýmist kallaður lögrétta eða
dómhringur. I honum miðjum er ferhyrnd smágirðíng, rúml. 2 □
faðmar að stærð. Er sagt að það sé sáðreitur eftir Stefán Gunn-
laugsen fógeta, er liann bjó þar. Hugsanlegt er, að ytri hringurinn
sé líka eftir hann, því hann virðist ekki verulega fornlegur. Nafnið
gátu menn síðar gefið vegna líkingar við hringa þá, er þau nöfn
báru. Búðatóftir sjást engar. En raunar er það ekki að marka,
þar eð svo mikið af túninu hefir verið sléttað. Sagt er, að bænahús
hafi verið í Belgsholti. En eigi sjást önnur merki til þess en þau,
að vestan við heygarðinn, sem nú er, er fornleg girðing, á stærð við
lítinn kirkjugarð. Engin tóft sést samt í henni.
6. Skeljabrehka.
Svo segir Landn. I. 19: »Þorbjörn svarti hét maðr; hann keypti
land at Hafnar-Ormi inn frá Selaeyri ok upp til Forsár; hann bjó á
Skeljabrekku«. Hér er að eins spursmál um, hvaða á það er, sem
hér er nefnd »Forsá«. Fyrir innan Seleyri renna tvær smásprænur
út í Borgarfjörðinn: Grjóteyrará og Árdalsá. Eigi eru fossar í þeim
nema ef til vill uppi í fjalli. En þó gera mætti ráð fyrir, að önnur-
hvor þeirra hefði heitið Forsá fyrrum, þá gæti hún þó ekki komið til
greina, því þessar sprænur eru báðir milli Seleyrar og Skeljabrekku.
En fyrir innan Skeljabrekku rennur engin spræna út í Borgarfjörð
önnur en Andakílsá. Land Þorbjarnar hefir, eftir landslagi að dæma,
hlotið að liggja inn að henni og eru jarðirnar Neðri Hreppur og Efri-
Hreppur auðsjáanlega bygðar af því landi. Lönd þeirra liggja með
Andakílsá, milli hennar og Skeljabrekkulands. Lítil spræna, sem
kemur suðvestan úr fjallinu, fellur í Andakílsá milli þessara bæja.
Hún heitir Þverá, minnir mig. Þó i henni kunni að vera ofurlitlar
fossabunur uppi í fjalli, þá mælir afstaða móti þvi, að hún geti verið
Fossá sú, er takmarkaði Skeljabrekkuland að innanverðu: hún renn-
ur ekki þvert fyrir innri enda landsins, heldur nokkurn veginn
langsetis með því að austanverðu. En það er Andakílsá, sem að
innanverðu rennur þvert fyrir sameiginlegt land Skeljabrekku og
Hreppanna beggja. í henni er allmikill foss, er blasir við ferða-
mönnum skamt fyrir ofan veginn. Og við þann foss eru kendir
bæirnir að Fossum fyrir innan ána. Hér getur enginn vafi verið:
Forsá sú, er Landnáma nefnir hér, hlýtur að vera Andakílsá. Er
3