Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1908, Blaðsíða 40
42
Eg athugaði vandlega alla legsteina og legsteinabrot í Skálholti.
Fann eg legstein Odds byskups Einarssonar mestallan og sömuleiðis
legstein Gísla Magnússonar frá Hlíðarenda; lá hann í brotum hingað
og þangað1); las á legstein Finns biskups, sem er úti undir kirkju-
gólíinu.
Hér væri ástæða til að framkvæma nákvæmar rannsóknir í
kirkjugarðinum; myndi hér mega finna hinar fornu biskupagrafir og
þá margt merkilegt.
í Klausturhólum er kallaður enn »Goðhóll« í túninu2) og
vottar þar fyrir tóft, enda varð og vart við veggjahleðslu, þá er
þar var grafið niður við sléttun fyrir 7—8 árum, rétt á milli traða
þeirra er liggja í vestur og suður.
I »Grímsleiði« var grafið fyrir 3—4 árum og vottaði ekki fyrir
hreyfðum moldum að sögn; var það þúfa ein vestur í túninu. —
Aðrir segja að það sé þúfa ein fyrir ofan vesturtröð, á milli fjár-
húsanna.
b Eg raðaði brotunum saman undir gólfinu til bráðabirgða, og sömuleiðis brot-
unum af legsteini Odds biskups; er nú að eins einn gamall legsteinn úti og er hann
trjávarinn, en ætti helzt að flytjast inn. Nauðsyn ber til að gera frekari ráðstafanir
til verndunar þessum legsteinum og mörgnm öðrum, t. d. í Bræðratungu þremur. Er
vonandi að næsta alþingi veiti fé til verndunar þessara fornmenja, það mi illa drag-
ast lengur.
2) Sbr. ísl. þjóðs. II, bls. 79.
MattMas Þórðarson.