Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Qupperneq 21
21
»mál8kemd« að láta bjagurmæli vaða uppi óátalið, enda þótt sum
þeirra geti verið allgömul. Það geta orðið margar framburðarútgáf-
urnar á sama orðinu í ýmsum héruðum, en allt »gumsið« á samt
að vera jafDrétthátt(!) Glundroðinn er sannarlega nógu mikill, þótt
ekki sé alið á honum með svona löguðum firrum og fjarstæðum af
þeim, sem þykjast vera »autoritet« á þessu sviði. Jafnvel sjálfur
flytjandi þessarar kenningar hefur þó ekki treyst sér að fylgja
þessari gullnu reglu sinni, því að hann talar opt um og vítir (í rit-
gerð sinni) »latmæli« og »afbakanir«, svo að hann er þar ekki vel
samkvæmur sjálfum sér.
Um skýringu höf. á Rauðsstöðum og Saursstöðum hef eg ekkert
að athuga, því að þær eru í fullu samræmi við skýringar mínar á
þessum nöfnum. Hins vegar er mér ekki fullljóst, hvað hann mein>
ar með þessum »málfræðisbrestic er sé fólginn í þvi, að eg haldi að
Kúgi og Kugi sé sama nafnið. Eg hef gizkað á, að viðurnefnið
kuggi væri sama nafnið, þ. e. sömu merkingar, og það mun rétt. Og
í tilgátu minni um hið upphaflega nafn á Kúskerpi (bls. 71 síðast í
skýringunni) hef eg nánar getið um nöfn þessi, og það er þessi tilgáta
ein, sem eg eigna mér í þessari skýringu (sbr. aths. neðanmáls), svo að
eg skipti mér ekkert af tali höf. um það, enda kemur hann ekki með
neitt, er geti bætt um skýringuna á þessu vafanafni. En skýringu
mína á »Kúastöðum« hygg eg fullkomlega rétta, enda minnist höf.
ekki á hana, og í ritgerð hans finn eg enga skýringu á þessu bæj-
arnafni, eða að hann hafl gert nokkra tilraun til að laga það, get-
ur að eins um Kúfustaði eða Kúastaði í upptalningu (bls. 438) og
lætur það gott heita(!) HaDn virðist halda, að eg hafi talað um ein-
hverja Kug- eða Kugg-staði, en þá hef eg aldrei nefnt, heldur Kúga-
staði (Kugastaði), svo að það hlýtur að vera fljótfærnismeinloka hjá
honum að nefna þetta í sömu andránni eða bera það saman við
Rug (Rúg) í Rúgsstöðum. Hann bendir á myndina rúfr=rúgur (korn),
er gæti upphaflega hafa verið viðurnefni, en um það er sama að
segja sem rúgur, að hvorttveggja er mjög ósennilegt viðurnefni, og
þess vegna hef eg horfið frá því, að Rúgsstaðir væru réttskýrðir á
þann hátt, en ómögulegt er það auðvitað ekki. En eg get fallizt á
það hjá höf. að rithátturinn Rug (með u) i fornbréfi geti bæði þýtt
ú og u, og að á því sé ekki svo mikið að byggja.
Eg er þakklátur höf. fyrir það, að hann telur skýringu mína
á Svarbœli=Svarfhœli sennilega rétta, þvi að hún liggur alls ekki
opin fyrir, og ýmsar miður heppilegar bollaleggingar hafa verið um
nafn þetta. En hann telur breytinguna á nafninu hafa orðið dálítið
á annan hátt, en eg hafði getið til, og skal eg ekki neita, að mér