Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Qupperneq 34
Um Lambaness-þing o. fl.
Fyrirlestur, fluttur að Eiðum *).
Eins og við vitum, varð deila þeirra Tungu-Odds og Þórðar
gellis 965®) til þess að landinu var skift í fjórðunga og 3 þing sett í
hverjum fjórðungi, nema í Norðlendingafjórðungi 4. Eg fer ekki frek-
ar út í það hjer, nema hvað Austfirðingafjórðung snertir, þar voru
þessi 3 þing sett fyrst: Sunnudalsþing í Vopnafirði, annað Múlaþing
að Þing-Múla í Skriðdal og þriðja Skaftafellsþing í öræfum. Við get-
um nú hugsað okkur hjer um bil, hversu stórt aðsóknarsvæði hvert
þing hefir haft eftir legu þingstaðanna, þó það hafi ekki verið fast-
ákveðið. Það sem við rekum okkur fyrst á hjer í Múlasýslum er
það, að þingin hafa verið höfð i oddum suður úr hjeruðunum, sem
þau eru háð í. Þing-Múlaþing var syðst á Fijótsdalshjeraði og Sunnu-
dalsþing syðst í Vopnafjarðarhjeraði. Við getum hugsað okkur eðli-
legast, að þingin hafi verið háð í miðjum hjeröðum eða því sem
næst; en til þess að svo var ekki hjer, hljóta að hafa verið þær
orsakir, að Sunnudalsþing hafa sótt menn austan yfir Smjörvatns-
heiði, af hve stóru svæði er ekki hægt að segja með vissu, og Þing-
Múlaþing aftur menn sunnan úr syðstu hreppum Suður-Múlasýslu.
Nú hefir það hlotið að vera svo strax í öndverðu, að Fljótsdalshjer-
að hefir verið lang-fjölbygðasta hjeraðið á öllu þessu svæði og þar-
afleiðandi dregið að sjer menn og málefni, eða með öðrum orðum:
alla bestu kraftana af þessu svæði. Eftir þessu þurftu menn að haga
sjer og því voru breytingar eðlilegar.
Vopnfirðingasaga gjörist á tímabilinu 980—990, en fjórðungs-
þingin eru eins og áður er sagt sett 965. Bardaginn í Böðvarsdal
1) Upphafinu á fyrirlestrinum er slept hjer. — Athugasemdirnar hjer neðanmáls
ern eftir Matthias Þórðarson.
2) Ejettara mnn vera 962, svo sem sagt er í flestnm hinna fornu annála vorra.
Sjá B. Th. Melsteð, ísl, saga II, 60.