Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Page 53
53
við rjettarvegginn. — Spölkorn norðvestar er lækjarfarvegur; þar
hefur verið vatnsbólið.
Gamall steðjafótur1 2) á Ljósavatni.
5 VIII. 1912.
í undirstöðu undir norðvesturvegg á haughúsi, sem er bakvið
þinghú8ið á Ljósavatni, er steinn með ferhyrndri holu klappiðri i;
sjer á þá hlið eina, sem holan er í, og er þessi hlið tigulmynduð,
2 hornin mjög sljó, en hin 2 totumynduð; lengdin er 77 cm. og
breiddin (um sljóu hornin) 50 cm. Holan er á miðju, og er 12 cm.
á hvorn veg, en 14. cm. að dýpt. Steinninn var fyrrum i hesthús-
vegg fyrir norðaustan bæinn, niðri á túninu; er það hús nú riflð,
en tóttin sjest Mun hjer hafa verið smiðja fyrrum, eða heima við
bæinn, og steinninn steðjafótur.
Fornir legsteinar í Múla í Aðalreykjadal.
13 VIII 1912.
í byrjun síðustu aldar kom upp gamall rúnasteinn i Múla, Bbr.
ritgerð Kr. Kálunds um Isl. Fortidslævn., bls. 123. Hann er nú í
smiðju á bænum, en alveg óskemdur. Hann er fimmstrendur, mjög
reglulega lagaður blágrýtisdrangur, sennilega úr Kasthvammsklöpp
Hann er 140 em. að lengd og 58 cm. að ummáli. Rúnalínan er á
einum fletinum, 36 cm. löng, 8 stafir, 7—7,5 cm. að hæð, og eru
8V0 IMHRI4R Þ- e- Ingiríðr. Áletrunin er heil, hefur aldrei verið
og líklega aldrei átt að vera lengri. Hún er varla yngri en frá
14. öld *)
Hjer er og annar blágrýtisdrangur, sem mun vera gamall leg-
steinn, en á honum er engin áletrun og hefur aldrei verið.
Fornar steinþrær á Halldórsstöðum í Laxárdal.
13. VIII. 1912.
Þórarinn Jónsson á Halldórsstöðum í Laxárdal fann sumarið
1907, við kjallaragiöft undir húsi sínu, nokkra bollasteina og kljá-
1) í fyrri hlnta þessa smágreinaflokks, i Árb. 1920, bls. 17, er prentað af rangá
„smiðjufótur11 (á Dunki) fyrir steðjafótur.
2) Legsteinn þessi er nú, er þetta er prentað, kominn til Þjóðminjasafnsins,
kom 192.3. Þverstrikið á næstsiðnstu rún er á ská.