Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 2
2
skipað 5. apríl 1574 að alþingi skyldi upp frá því vera haldið í Kópa-
vogi og ekki á Þingvelli við Öxará (Árb. ’21 - 22, bls. 74—75), en
raunar hafði því ekki verið hlýtt. Það var nú svo langur tími liðinn
síðan, að vafasamt er, hvort þeir Bjelke eða Bessastaðamenn, eða
nokkur þeirra, er nú voru komnir saman á Bessastöðum, hafi vitað
um þá konunglegu fyrirskipun. En Kópavogur var einn af fjórum
þingstöðum í Gullbringusýslu og hafði lengi verið. Þar dæmdi 1. júní
1523 tylftardómur útnefndur af Erlendi lögmanni Þorvarðssyni, kon-
ungs-umboðsmanni (sýslumanni) í Kjalarnesþingi, Týla Pétursson, fyr-
verandi hirðstjóra, fullan ránsmann og óbótamann fyrir aðför hans
að Hannesi hirðstjóra Eggertssyni á Bessastöðum, og sömuleiðis allan
þann flokk manna, íslenzkra og útlenzkra, sem veitt höfðu honum lið
»og ónauðgir voru þar til« (Dipl. Isl. IX. nr. 119.). í forsögninni er
Kópavogur nefndur »þingstaður réttur«. — Mál þetta var eitt af mestu
stórmálum hér á landi, Bessastaðarán Týla, tylftardómur lögmannsins
og fullnæging dómsins, dráp Týla. — Nokk.rum árum síðar, 1539, 5.
sept., var enn kveðinn upp í Kopavogi tylftardómur af sama lögmanni,
og voru þeir, er framið höfðu klausturránið í Viðey með Diedrich
van Minden og síðar verið drepnir, dæmdir óbótamenn, en þeir sýknir
saka, er þá höfðu tekið af lifi, þó því að eins, að Alexíus ábóti leiddi
tvö vitni, að þeir hefðu framið ránskapinn, sem síðan höfðu drepnir
verið. (Dipl. Isl. X., nr. 197.). Eru þessir dómar báðir merkir og hinir
ejztu, er þekkjast munu frá þessum þingstað. Tveim árum eftir þessa
atburði og dráp Diedrichs v. Minden og manna hans kom yfirmaður
hans, Klaus van der Marwitzen, hingað á herskipi, undir forustu
Christophers Huitfeldts, til þess að jafna á Ögmundi byskupi, sem
þeir gáfu sök á þessu. Síðasta dag maímánaðar um vorið (1541)
mæltu þeir sér mót á þingi í Kópavogi og Gizur byskup og brugg-
uðu þá vélráðin í laumi, handtöku Ögmundar byskups, á Hjalla, og
heimreið á heimili hans i Haukadal. — Fóru þeir K. v. d. Marvitzen
og Gizur þangað til að láta greipar sópa um fjárhirzlur gamla manns-
ins, en trúnaðarmaður Gizurar reið við fjórtánda mann til þess að
taka höndum biskupinn, blindan og gamlan. Er óþarft að fjölyrða
hér um alla þá óhæfu, þar sem mál þetta er alkunnugt og hefur
nýlega verið rakið alt eftir bestu heimildum.1)
II. Nokkur sakamál á 16. og 17. öld.
Séra Jón Egilsson getur þess í Biskupa-annálum sínum, að Þor-
kell, sonur Þorleifs Eyjólfssonar, Gíslasonar í Haga, Filippussonar,
hafi verið af tekinn á Kópavogs-þingi (Safn. I., 41). Hann segir ekki
’) Sjá Menn og menntir eftir Pál E. Ólason, II. 330 o. s. frv.