Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Blaðsíða 71
71
textanum eða málinu þar hjá, í sömu bók, hvaða hús myndin á að
tákna. Myndina hef eg.
Líka lángar mig mjög til að biðja yður um að útvega mér eptir-
mynd af myndinni af Valhöll í Á. M. safninu í Eddu-handriti frá 1680,
og hvaðan handritið er. Þetta er mér áríðandi.
Hér í bænum hefir allt verið mjög dauft og dýrðarlítið í vetur,
öngvar skemtanir, nema tvær tombólur fyrir kaupmenn og hand-
verksmannasjóðinn, sem nú er orðinn á 5. hundrað dali. Einhver
óvanalegur kuldakur til Dana geisar yfir allt land, og bryddir á hon-
um töluvert við og við í blöðunum, framar venju, í smágusum. En þó
hefir hann sýnt sig mest í verkinu, í verzlunarsamtökunum; viljann
vantar ekki, ef ekki framkvæmdarhyggindin bresta, því sá forni óvin-
ur vor, kaupmennirnir, eru slægari en þeir, og munu ekki láta sitt
eptir liggja. —
Það á að verða dans í skólanum þann 8. Eg hefi von um að öllu
forfallalausu, að 4—5 stúlkur fari þangað í nýjum íslenzkum skaut-
búníngi, sem þær hafa eptir mínum ráðleggíngum fundið upp og ætla
að reyna að hafa sem ballbúníng; búníngurinn er alhvítur, nema kríng-
um hálsmálið, og ermarnar fremst, og hér um bil alveg sá forn
kirtill að laginu til, með hálfermum (skautermum), svo við hann má
hafa bæði men og armhrínga, hann er allur víðari og léttilegri en
hinn og á betur við dans; alt sama silfur á að hafa við hann og hinn
og eins möttul. Máske maður geti svona smásaman smeygt inn forn-
búníngunum með lagi. Eg heyri undir væng hjá dansklunduðu drós-
unum hér í bænum, að þeim þykir þetta eins konar óhæfa og »gamla
sérvizkan úr mér«, svo eg býst við, að ef af þessu verður, að það
dansk-íslenzka og íslenzka kvenfólk lendi í stríði út úr þessu, því þær
dönsku hafa gert allt til að spilla þessu með kjaftæði um bæinn og
er því komin kergja í hinar. Eg hlakka til að sjá, hvernig kvenþjóðin
stendur sig, ef í stríð fer, því þetta er orðið eins konar tegund af frelsis-
og þjóðernis-stríði þeirra á milli; varla dettur þetta mál niður með
öllu. —
Nú hefi eg ekki meira að skrifa að sinni. Fyrirgefið þessar fáu linur.
Yðar
Sigurður Guðmundsson.