Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Blaðsíða 98
98
ætli autogaphia þoli 800 aftryk? Um það veit eg ekkert. — Batnaði
mér töluvert, þá gæti eg í snatri haft 2 fyrstu heftin tilbúin og nóg
er til í þriðja heftið. — Það er ekki til neins að tala um þetta eins
og stendur
Mjög þykir mér vænt um að fá skýrsluna um forngripasafnið.
Nú bið eg yður að fyrirgefa þessar fáu línur; eg er með herkjum
fær um að skrifa, eins og stendur.
Yðar
Sigurður Gudmundsson.
Athugasemdir og skýringar
við bréf Jóns Sigurðssonar og Sigurðar Guðmundssonar.
Bréf Jóns til Sigurðar eru flestöll i vörzlum Þjóðminjasafnsins, sum í bréfa-
safni þess, sum í safni Sigurðar; að eins eitt, nr. VI, er í handrs. Jóns í Lands-
bókasafninu, nr. 144 fol. Bréf Sigurðar til Jóns eru nú i Þjóðskjalasafninu, i
bréfasafni Jóns, sem þar er.
1. Bls. 34, »steininn«, þ. e. hinn svo-nefnda »álnarstein«, sem er fyrir fram-
an kirkjuna á Þingvöllum; sbr. niðurlag bréfsins. — Hann er raunar enginn
»álnarsteinn«, ekki markað á hann neitt alinmál. Rákirnar á honum eru eftir
augu eða holur í berginu. — Bls. 35, »uppkast af korti«, sbr. 2. bréf. — Kata-
stasis, nefnilega Sigurðar lögmanns Björnssonar, frá 1700; sjá Árb. 1887, bls, 45
—46. — Um Þingskálaþingstað sjá Árb. 1888—92, bls. 54—60, og Árb. 1898, bls.
13—14 með uppdrætti. — »Mynd af blótbollanum«; þessi bollasteinn kom til Þjóð-
minjasafnsins síðar, 1881; er með tölumerkinu 1929 i safninu. Hann kann að
hafa verið vatnssteinn, fyrir vigt vatn, og tilheyrt kirkju á Þingvöllum í kaþólsk-
um sið. Sumir slíkir bollasteinar hafa sennilega verið notaðir til að mylja í, eða
eins konar mortél, sumir mundlaugar. — Jón Sigurðsson áleit hann vera gamlan
»Ólafsstein«, sbr. athugasemd við bréf nr. IV.
1. Bls. 36, »Professorinn«, þ. e. dr. Pétur Pétursson, síðar byskup; hann var
forseti Reykjavíkur-deildar Bókmentafélagsins þá. — Af þessu er bersýnilegt, að
Jón Sigurðsson hefir beðið þá Björn og Sigurð um Þingvallaruppdráttinn fyrir
Bókmentafélagið, enda er uppdráttur Björns enn i eigu þess. — Uppdrættir Sig-
urðar af »álnarsteininum« og »blótbollanum« eru nú i safni hans til Þingvallar-
lýsingar, sem var fyrrum meðal skjala og bréfa Hafnardeildar, en nú er í
safni Sigurðar í Þjóðminjasafninu. — Bréfið er prentað áður í Minningarriti J.
S„ bls. 327.
2. Bls. 36. Fyrir 1. nóvbr. hefir Sigurður skrifað af vangá 28. septbr. (sbr.
upphaf á bréfi nr. I). — Bls. 37. Sigurður gerir hér grein fyrir upphafi staðar-