Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Blaðsíða 89
89
fornmenjum ofanjarðar, sem brýn nauðsyn væri að rannsaka og friða,
og eg held jafnvel það væri nauðsyn á að fá til vonar og vara laga-
boð, sem bannaði útlendíngum að grafa í hauga, því margir af þeim
hafa verið að hugsa um það, þó lítið hafi enn orðið af því. — Það
þarf að reyna að glæða áhuga landsmanna fyrir fornmenjum vorum
með ritum; með öðru er það varla hægt. — Blöðin eru svo aum, að
það er varla eigandi við þau með neitt, eins og stendur.
Forlátið þér nú þessar línur.
Yðar
Sigurður Guðmundsson.
í skinnbókinni AM. nr. 350 folio, sem ártalið 1363 er á, er við
cap. 1. mynd af presti, sem er að skíra barn, og guðfeðginin eru þar
sýnd. — Eg vildi fá að vita, hver liturinn er á klæðunum, ef hann
er sýndur, og hvort myndin er, hvað klæðnaðinn snertir, hér um bil
samhljóða þeirri prentuðu mynd, á þeim prentaða Kristna-rétti.
S. G.
XIII.
Khöfn 26. September 1873.
Háttvirti kæri vin,
Eptir ósk yðar sendi eg yður hér með lýsíng á skirnarmyndinni
í AM. skinnbók 350 Fol. Eg vona þér getið þaraf séð nokkurnveginn
hvernig mynd sú er ásigkomin, þó lýsíngin sé ekki eins góð og vera
ætti, eða þér vildið óska. Eg get ekki tekið betur eptir en svo, að
prestur muni eiga að vera hvítklæddur, konan hvítklædd, maðurinn
rauðklæddur, barnið bert. Þessi tilgerð í því, hvernig maðurinn stend-
ur, eins og hann sé að dansa í ballet eptir Burnonville, er víst ekki
annað en skrúf hjá þeim, sem dregið hefir upp stafinn, eða sett í
litina (lýst bókina).
Má eg ekki eiga von á, að þér styrkið Þjóðvinafélagið með
krapti, beinlínis og óbeinlínis, við þurfum á öllu okkar vinaliði að
halda, og mun þó ekki af veita. Hafið þér engar ritgjörðir sem eru
við okkar hæfi, eða eitthvað annað gagnlegt, eða pólitískt sem gæti
verið anonymt ef þér viljið.
Þeir eru famir að kaupa málverk í Reykjavík. Getur það ekki
verið atvinna, að fá sér eitthvað þesskonar til að mála og selja síð-
an? — Ef maður er fljótur og selur billega nokkuð, mætti maður