Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Síða 45
45
okkar liðveizlu til að útbreiða það sem þið vilið hafa útbreitt, svo
sem ritgjörðir og skýrslur.
Forlátið miðann, og verið kærlega kvaddur.
Yðar einlægur vin
Jón Sigurösson.
P. S. Látið þér búa til Dúkkur (brúður) með fullum búníngi frá
ýmsum öldum, bæði karla og kvenna!
4.
Reykjavík 4. August 1864.
Góði vin!
Lángt er síðan að eg hefi skrifað yður, og þó hefir síðan borið
lítið til tíðinda, sem eg get skrifað yður, og lítið hefir mér bætzt
fróðlegt, er yður þykir fróðlegt. Samt skal eg að eins drepa á fáeina
hluti, því alltaf má fá eitthvað. — Það er því fyrst að nefna það, að
eg hefi alltaf til þessa dags verið að safna og skrifa mönnum til,
viðvíkjandi Þíngvelli, og held eg að eg sé búinn að fá það mesta
um það, sem er í sögusögnum út um landið, en allt fyrir það mætti
enn fá miklu meira þar að lútandi, allra helzt, ef menn vildu bera
Þíngvöll saman við aðra þíngstaði, sem reyndar væri nauðsynlegt,
en það er ekki hægt fyr en eptir langa mæðu. Þó að þetta sýnist
ekki mikið, þá er ilt að tína það saman, því ilt er að vita, hvar þess
er að leita, og þegar það fæst, þá ber mönnum opt ekki saman og
verða menn opt að flækja þá með að skrifa þeim, sínum í hverju
lagi, og það opt þegar þeir ekki svara, og þegar þeir svara vill eng-
inn láta af sinni meiningu. Þá er ekkert að gera annað en að skrifa
sögurnar eins og þær eru sagðar og nafngreina sögumann, því eg
læt þá gefa mér flestar vafasögurnar skriflega, í von um að þeir
segi þá heldur satt, einsog þeir hafa heyrt, því þá eiga þeir meir í
hættu, ef þeir ljúga.
Eg hefi reyndar nokkuð smásmuglega farið út í þetta mál, því
eg hefi tekið allar sagnir, er eg hefi fengið um þegar nýir vegir hafa
verið lagðir eða þá vegum hefir verir breytt, því annars kunna seinni
alda menn að villast á þeim, og halda að þeir séu gamlir. Þetta
gerði eg af því, að eg vissi ekki, hvort það stendur í lýsingu síra
Björns, og sé það ekki þar, er það nauðsynlegt. — Eg hefi og grensl-
ast eptir, hvar menn vita að túnið hafi verið sléttað, og hvort þar