Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 53
53
ráðið þér, Á hjálögðum lista fylgir uppskript á hvað sérhvað heitir,
eptir því sem skrifað er í tölum á hlutina sjálfa.
Yðar skuldbundinn vin
Jón Sigurdsson.
VIII.
DEILD HINS ÍSLENZKA BÓKMENTAFÉLAGS
i Kaupmannahöfn, 24. júni 1868.
Á fundi félagsdeildarinnar 15. dag febrúarmánaðar i vetur var
það samþykt, að styrkja forngripasafnið í Reykjavík, sem þér og nú-
verandi umsjónarmaður við latínuskólann, herra stúdent Jón Árnason,
hafið mest og bezt gengizt fyrir að efla og annast, með því, að prenta
á félagsins kostnað skýrslur um safn þetta, þá sem þér höfðuð í fyrra
sumar afhent forseta deildarinnar. Nú er skýrslan prentuð, og þareð
það virðist nauðsynlegt og gagnlegt, að umsjónarmenn forngripasafns-
ins hafi umráð yfir bók þessari til útbýtingar, gjafar eða sölu, eptir
því sem hentast mætti þykja og gagnlegast fyrir safnið, þá sendum
vér yður hérmeð 150 exx., og ætlumst til að þið, umsjónarmenn
safnsins, hafið þau til umráða, en vér óskum gjarnan að heyra, hvort
og á hvern hátt ykkur tekst að verja þeim til nota safnsins.
Jón Sigurðsson,
p. t. forseti.
S. J. G. Hansen,
skrifari.
Til
herra málara Sigurðar Guðmundssonar
í Reykjavík.
IX.
Khöfn 26. Júni 1868.
Elskulegi vin,
Nú get eg þó loksins sagt yður dálítið um forngripa skýrsluna.
Hún er nú búin, og verði þér að eiga við mig um fráganginn á henni,
ef yður mislíkar hann í nokkru. Eg hefi vandað hann sem eg gat bezt.
Þar næst hefi eg látið prenta umfram nokkuð til þess að þið gætið
haft það til meðferðar, og því sendir nú félagið yður, eða ykkur Jóni