Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Qupperneq 56
56
dysi fanst axarblað, mjótt, spjótsoddur, brotinn, járnhríngja. Þessir
hlutir eru allir komnir, en skýrslan um þá er mjög ónákvæm. Hún
sést í Baldri hinum góða að nokkru leyti, nema hvað getgátan um
aldur þessara hluta er þar alveg röng, því þessir hlutir, hvað lag og
útsk.urðaranda viðvíkur, sverja sig í ættina, að þeir eru frá okkar
elzta tímabili. Og sama er að segja um fyrirkomulag dysanna og járn-
ketilinn, samanber Hildishaug og að berja nestið. Eg fékk og nýlega
atgeir, sem fanst í Skagafirði. Hann er nokkuð skemdur, en mikið má
samt sjá af Iaginu á honum. Fleira hefi eg fengið töluvert gamalt
og gott. Þetta sýnir, hvað safnið er nytsamt, því ef það hefði ekki
verið, þá mundu að minsta kosti flest vopnin hafa verið glötuð, eins
og skeði þángað til safnið var stofnað, þvi ekki er ástæða til að halda,.
að meira finnist nú af vopnum en áður; en munurinn er sá, að nú
er því haldið til skila, sem finst. Eins mundi margt af öðru, sem til
er á safninu hafa verið glatað, ef safnið hefði enn verið óstofnað,.
en varla sent til Hafnar.
Eg ætla að drepa á fáa hluti, sem hér hafa við borið síðan seinast,.
og sem öðrum kynni að þykja varla þess verðir, því sumir hugsa
hátt(?) Fyrir ofan lækinn er nú verið að byggja 5—6 hús, flest upp
með veginum, og 1 kot, Hafsteinsbúðina nýju, 1 hús vestur með Hlíð-
arhúsastígnum og 1 kot þar norður af. Það er byrjað að byggja
Skólavörðuna og eru komnar 4 álnir af henni. Hún er nú lögð í kalk
og er það, sem komið er, gert eptir þeirri mynd, er þér sáuð hjá mér;:
þannig verður öll neðri tasían að mestu, og líklega sú efri. Samt er
eg ekki alveg viss i, nema þeir kunni að fá einhverja útúrdúra áður
en líkur; það er ekki gott að ráða við þá. Kirkjugarðurinn er gerður
nærri helmíngi stærri suður á við og prýðir það mikið. Kaupmenn
hafa sett upp skothús ekki ósnoturt, en lítið, sunnan við Bakaratúnið.
Nú er lagður 8 álna breiður, þráðbeinn vegur fram yfir öll túnin
vestur frá Hlíðarhúsum og sett stakkit með honum að ofan. Mikið
var hér í vor þjarkað um, hvar ætti að leggja nýjan veg inn yfir
holtið, upp úr bænum; sumir vildu hafa gamla veginn og þriðju þar
mitt á milli. Samt varð endirinn, að vegurinn var lagður inn yfir
holtið frá Skólavörðunni, og nú eru þeir að rífast um, hvort eigi að
halda honum áfram ofan í bæinn. Flestir munu vera á því, en þeir
Halldór Friðriksson og Jón Guðm. eru mest á móti því og bera þeir
helzt fyrir sig, að bæjarstjórninni hafi aldrei hugsast að leggja veg á
þeim stað. Er það ástœða! Hvað sem nú öllu því líður, þá er ódýr-
ast, fallegast, styzt, beinast, bezt að halda veginum við, og hann
verður altaf þur, ef hann er lagður upp hjá Skólavörðu og þaðan
inn á Öskjuhlíð, þráðbeint, og það verður liklega gert mikið af þvi