Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Qupperneq 60
60
að hnötturinn sé að snúast, svo að ísland hljóti seinast að verða
tómur ís. Þessar skaðlegu barnahugsanir gera miklu meira íllt en
menn skyldu fljótlega hugsa. Því auk þess, að menn eru að hugsa
af landi burt, hver sem getur, þá eru menn mjög alment búnir að
tapa öllum áhuga á að koma landinu upp og halda að það sé til
einskis, og kenna enda landinu um flestan, ef ekki allan sinn ódugnað.
Þessu þarf að hrinda með rökum og það sem allra fyrst.
(S. G.)
X.
Khöfn 16. Septbr. 1868.
Kæri góði vin,
Beztu þakkir fyrir yðar síðasta góða bréf, og það gleður mig,.
að þér hafið orðið var við gagn af skýrslunni, svo eg vona allt
gángi fram með tímanum. Eg sendi nokkur exemplör til forstöðu-
manna safnsins hér, Vorsás og hinna, við Vors. hefi eg ekki talað,
en Strunk segir mér að vissulega fái þið sendingu héðan, og þeir
hafa lofað mér að draga út úr oatalogum sínum lýsingar á því, sem
komið hefir frá íslandi. Nú vantar helzt uppdrætti og svo meiri efni
til að geta prentað meira, og uppdrætti með; en allt getur samt
tekist ef við getum haldið pínuna út. Eg hefi fundið nokkuð af
gömlum lýsingum fornleifa, eptir ýmsa frá tímum Árna Magnússonar,
eins nokkuð frá Jónasi Hallgrímssyni og fleirum, sem er reyndar
sumt lítt merkilegt, en sumt aptur allgott, og þegar til samans kæmi
yrði kað gott. Það er ágætt, að þér semjið skýrsluna, og ef þér yður
að meinalausu getið sent mér hana, þá er það gott, en ekki get eg
gefið yður von um, að hún verði prentuð í vetur kemur, og mér
finnst það líka minna vert en hitt, að festa félaginu með það, að
hún verði prentuð, og svo að fá handa yður meiri ritlaun. Eg hugs-
aði að ef þér fengið 50 rd. til, þá væri það allsæmilegt fyrir fyrsta
heptið, en svo eru viðskipti ókláruð um tillög yðar um nokkur ár,.
og svo hafið þér líklega ekki fengið bækur. Þetta vildi eg nú hafa
hreint, og ef þér vildið segja mér hvernig þér hugsið yður það, þætti
mér vænt um. Eg vona ef guð lofar að koma til alþíngis að sumri,
og þá hugsa eg að hafa með mér og sýna yður þessar skýrslur
sem eg hefi, og getum við þá talað okkur saman um hvernig þær
yrði bezt notaðar.
Ekki ber neitt á um 300 rdalina, svo eg heyri, en ef alþíng
fær fjárráð, þá álít eg þá sjálfsagða, og enda meira, sem líka þyrfti