Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Blaðsíða 75
75
að vera, sem þar er myndað. Eg þarf að svara dönskum gaur, sem
rengir hugmynd mína um skálann í Njálu. Eg geri það vegna íslend-
ínga; um Dani stendur mér á sama, þó þeir skilji allt vitlaust.
Yðar
Sigurður Guðmundsson.
XII.
Khöfn 19. August 1870.
Háttvirti góði vin,
Nú hefi eg fengið handa yður uppdrættina, svo góða sem eg
held að þér getið notað, því eg fékk mann frá Bærentzen til að
kalqvera myndirnar. Á höndinni sem er á nöfnunum utanvið Valhöll
sjáið þér, að það handrit muni vera frá 1680 þarumbil, og sýnist vera
orðið til norður í Hrútafirði. — Skinnbókin A.M. 345 Fol. sýnist vera
skrifuð um eða nálægt 1570, kannske heldur fyrir en eptir. Hún er
komin til Árna Magn. frá Einari ísleifssyni á Reykjum í Ölfusi, og
kynni vera þaðan ættuð eða þar úr nágrenninu. Þar bjuggu, sem þér
vitið, ættmenn Ögmundar biskups. Þar eru kóngamyndir fremst, fallega
dregnar, Sverrir — Hákon — Magnús — Eiríkur og Ólafur helgi.
Hákon Sverrisson er ekki, og hefir maðurinn sem dró upp líklega
ekki þekkt hann. Myndir með búníngum koma fyrir allvíða, sem þér
víst hafið noterað. Hestar Iíka og söðlar og spángir á lend o. s. frv.
— Myndina úr Bestiarius getið þér ekki fengið betri, en að eg sendi
yður exemplar af öllum blöðunum, sem fornfræðafélagið gefur safn-
inu ykkar. Eg imynda mér þér hafið það ekki áður. Hvar er annars
þetta sem þér bendið til um húsmyndirnar? þar sem tortryggð er
yðar mynd. — Um kvennmyndirnar í AM. 345 get eg ekki sagt ann-
að, en hvað þér sjáið sjálfur á uppdrættinum, einúngis sýnist mér að
aptasta myndin sé nokkuð ljósblárri en i skinnbókinni, en ekki sé eg
betur en að búníngurinn sé blár, og á brúðinni grœnn. uppslög á
ermum eru hvit, höfuðböndin eru hvit með svörtum kringlum (á brúð-
inni) eða deplum, en á hinum með svörtum reitum eða tenníngum.
Eins eru svosem krínglur dregnar með bleki framaná þeim. Er þetta
ekki drættir til að teikna silfur? Það er víst ágætt ráð að búa til
brúður í fullri stærð. Brúðuhöfuð getur maður útvegað í fullri stærð,
og mundu kosta á að gizka 2—3 dali hvert, eða kannske ekki svo
mikið. Almennt kosta brúðuhöfuð svosem 8 mörk, en hér verður að
láta búa til öðruvísi lagað höfuð, eptir uppdrætti frá yður eða fyrir-