Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Side 86
86
hafa fundið 3 sverð heil og smíðað úr einu, selt útlendum annað og
óvíst að því þriðja verði bjargað. Þar að auki geta hálfu fleiri vopn
hafa fundizt, þó eg ekki viti það; um slíkt þarf að koma í ritum
árlega, svo það berjist sem allra fyrst inn í menn tilfinníng fyrir slíku.
Það er þó komið svo lángt, að mörgum þykir þetta ljótt. Eg vona
að þér gerið yðar bezta í þessu máli. — Allt af miðar búníngnum
áfram, um allt land, og hér í Vík eru allt af þær dansk-klæddu
að fækka. Eg vona það komi laglegir búníngar á sýnínguna héðan,
svo það verði ekki mikið til skammar, verði allt búið í tíma. Annars
mun það verða lítið, sem héðan kemur, enda gerir það meðfram
samgönguleysið.
Fyrirgefið þessar fáu línur.
Yðar
Sigurður Gaðmundsson.
21.
Reykjavík 2. September 1872.
Góði vin!
Eg hefi séð af skýrslum og reikníngum bókmentafélagsins, að
skýrslan um safnið muni eiga að koma út að vori, en eg veit ekki,
hvort framhaldið ætti að koma með. Safnið hefir nú fengið rúm 900
nr. Það hefði verið gott, hefði það komið með, því gefendurnir vilja
allir í raun og veru sjá nafn sitt á prenti. Þó þeir þykist gefa af
bara föðurlandsást, þá er það þó ekki svo, því allt af mínka gjafirnar,
hvernig sem á því stendur; maður verður nú að kaupa, vilji maður
handsama nokkuð. — Ef maður hugsaði til að gera skýrsluna, þá er
efasamt, hvort hún gæti orðið búin með síðasta póstskipi. Að sönnu
yrði hún varla löng, því þegar maður er búin að fá gott undirlag,
þá er ekki eptirleiðis þörf á að skrifa eins nákvæmlega um hlutina,
heldur má sítera fram og til baka. En fyrstu árin er nauðsynlegt að
skrifa ýtarlega um hlutina, til þess að reyna, ef hægt væri, að sýna
mönnum þýðing safnsins fyrir þjóðerni vort. Mér þykir illt að verða
að segja yður, að eg þarf, ef kríngumstæðurnar leyfa, það sem eftir
er af borguninni fyrir skýrsluna, mest af þeim ástæðum, að eg varð
að brúka nærri allt árið í fyrra í safnsins þarfir, fyrst til að semja
skýrsluna, sjá um smíði á herbergjunum og skápum og svo til að
raða safninu og láta gera við marga hluti á því. Fyrir þetta hefi eg
enga borgun fengið, nema það sem þér vitið fyrir skýrsluna. Þér
skuluð ekki taka þetta svo, að eg sé ekki þakklátur bókmentafélaginu