Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Qupperneq 94
94
mest í bága við þessa mína ætlun, en þá er ekki að marka, því öll
myndin er teiknuð með rauðu og eiginlega engvir litir sýndir, nema
á skónum. Að menn hafi valið nunnur til að halda börnum undir
skirn er mjög eðlilegt, til að komast hjá meinbugum, þegar það var
hægt. — Þessi búníngur er alveg óþektur á íslandi og getur varla
verið annað en nunnu- eða einsetukonu-búníngur og er alveg sam-
hljóða enskum myndum, en líklegt er, að þær hafi haft svarta kyrtla,
sem hér eru aðeins sýndif með sterkum rauðum skuggum. Auðvitað
er, að maður getur ekki alveg með vissu sagt, að þessi min tilgáta
sé áreiðanleg.
Mér þótti fróðlegt að sjá þennan kafla úr bréfi Mágnúsar Andrés-
sonar, en eg hefi reyndar heyrt þetta allt löngu fyr. Eg hefi merkan
beinhólk úr dysjunum við Knafahóla, og kol og eirplötur ómerkar
sá eg fyrir mörgum árum síðan hjá enskum ferðaslæping, sem hafði
náð þvi á Bergþórshvoli; sjálfsagt það sama og Magnús talar um.
Eg held að það verði lángt þángað til menn fá peninga til að grafa
upp rústir hér á landi, svona í óvissu. Mér finnst mest ríða á, að
reyna að bjarga fyrst þíngstöðum og sýnilegum bæjarústum, sem enn
eru ofanjarðar um allt land, jörðin geymir sitt þángað til að það er
gjört; — en það er ekki svo að skilja, að eg álíti ekki nauðsynlegt
að gjöra stórkostlega útgrepti víða á bæjum, t. d. þar sem klaustur
voru, skálar, hof, búðir eða fornar kirkjur, t. d. á Hrisbrú, en þetta
kostar allt fjarska penínga og getur heldur beðið en hitt.
Eg hefði vilja til, ef eg gæti, að fullgera ritgjörð um Þíngvöll,
en það er vandasamt og hamíngjan má ráða, hvort eg get nokkuð
gert að því í vetur, því verði leikið hér, sem líklega verður, þá er
eg fastur við það fram eftir öllum vetri, og það sem verst er, það
er eldiviðarleysið og ljósleysið, sem hér ætlar alla að drepa í vetur.
Það er ekki útlit fyrir að það lagist í vetur, og það er nóg til að
gera allt ómögulegt.
Fyrirgefið þessar fáu línur.
Yðar
Sigurður Guðmundsson.
Hér er að nafninu kominn á sunnudagaskóli; þar kenni eg teikn-
ing, með laklegum áhöldum, en hvort þetta verður annað en heimska
og bráðabirgðar-uppþot má hamíngjan ráða. Dálítil verslunarsamtök
hér syðra, þó alt á stángli og sundrúng.
Pólitikin sefur alveg. Það heyrist ekki mjæmt. Er það góðs eða
ills viti? — Eg bið yður að taka til greina nokkrar leiðréttingar við