Norðurljósið - 01.01.1965, Side 23
NORÐURLJÓSIÐ
23
er í líferni þínu, að hjálpa þér til að dæma og að snúa þér
frá sérhverri synd, sem hryggir Guð. Síðan biður þú heil-
agan Anda að leiða þig greinilega til að þrá að fá þá hluti,
sem eru réttir, og láttu hann leiða þig í bæninni. I hvert
skipti, sem þú getur beðið bænar, sem þú veizt, að heilagur
Andi hefir lagt í hjarta þitt, getur þú með djörfung krafizt
svars; og þú munt vita, að þú ert að biðja samkvæmt vilja
Guðs og að þú munir fá beiðni þína uppfyllta. Ákveðin
bæn er ekki það, að þú sért að reyna að vinna Guð á þitt
mál. Hún er öllu heldur það, að þú reynir að finna einmitt
það, sem Drottinn vill gefa þér, sem hann vill, að þú biðjir
um, og síðan biður þú þeirrar bænar, sem heilagur Andi
leggur þér á hjarta.
--------x--------
BÆN FYRIR DAUÐUM
„Hjálpræðið heyrir til Guði vorum, sem í hásætinu situr
og Iambinu.“ Opinb. 7. 10.
Bæn fyrir dauðum er marklaus, hún hefir eigi neinn
hljómgrunn í orði Guðs né fyrirheitum. Á Golgata hrópaði
Jesús: Það er fullkomnað. Allt sem þénar oss til frelsis og
eilífrar sáluhjálpar er fullkomnað í endurlausnarverki Jesú
Krists. Friðþæging Hans fyrir syndir vorar er fullgild og
staðfest með dýrlegri upprisu Hans frá dauðum og himna-
för, fyrir hverja Hann hefir búið oss sæluvist í himneskum
og dýrlegum híbýlum í húsi síns Föður. Jóh. 14.
Bæn fyrir dauðum eykur ekkert á fögnuð þeirra og
sælu, sem komnir eru heim fyrir lambsins blessaða og dýr-
mæta blóð. En bæn fyrir dauðurn bjargar ekki heldur þeim,
sem dáið hafa í synd, án iðrunar og trúar og þar með
hafnað Jesú Kristi og hjálpræði Hans. Því án blóðs Jesú
er maðurinn algjörlega útilokaður frá Guði og Hans dýr-
lega ríki.
Guð fyrirgefur syndina á þann hátt, að Hann afmáir,
þurrkar hana út með blóði Sonar síns Jesú Krists, sem
íklæðir mann dýrlegum klæðum Jesú Krists, alskínandi
réttlæti, já, björtum klæðum heilagleika Hans.
„Farið ekki lengra en ritað er,“ segir Páll postuli. Ef
bæn fyrir dauðum er samkvæmt orði Guðs og vilja, mundi
Jesús hafa sagt það lærisveinum sínum, er Hann kenndi
þeim Faðirvorið, en eins og allir vita, er þar engin bæn
fyrir dauðum.
Bænin Faðirvor er hin fullkomnasta og auðugasta bæn.
sem Guð hefir lagt á varir sinna barna. En Hans börn eru
allir þeir, sem hlýtt hafa köllun Hans í Jesú Kristi, sem er
yfir öllu, Guð blessaður að eilífu. Róm. 9. 5.
Farið því ekki lengra en ritað er, því hjálpræðið heyrir
til Guði vorum, sem í hásætinu situr og lambinu, eins og
áður er sagt. Það bendir til þess, að þeir sem rækja bæn
þessa trúi ekki friðþægingu Krists.
Ég trúi eða álít, að bæn fyrir dauðum sé móðgun við
endurlausnarverk Krists og dómsorð. Jesús er ekki aðeins
Frelsari. Hann er einnig dómari lifenda og dauðra. Post.
10., 42. „Honum bera allir spámennirnir vitni, að sérhver,
sem á hann trúir, fái fyrir Hans nafn syndafyrirgefning.“
Post. 10., 43.
Þeir sem kenna, að allir verði hólpnir, fara með blekk-
ingar og lygi, sem áreiðanlega verður straffað með þung-
um dómi. Ég get varla hugsað mér meiri synd en að leiða
fólk í villu, fremja sálnamorð. Páll postuli sagði: Þeir
sem ekki þekkja Guð og ekki hlýða fagnaðarerindinu um
Drottin Jesúm Krist, „munu sæta hegningu, eilífri glötun,
fjarri augliti Drottins og fjarri dýrð máttar hans.“ II. Þess.
1. 8.-9.).
Sjálfur hefi ég séð hættuna í því að biðja fyrir hinum
dauðu, því að ekki eru allir hólpnir, sem dánir eru, ekki
allir hjá Guði, því að synd er þar útilokuð. Ef Guð tæki
mennina í syndinni inn í sitt ríki, mundi það vera verra
en sá heimur, er vér nú búum í. Þess vegna er Guðs himn-
eska ríki sælunnar ríki, af því þar er engin synd. Guð er
ekki aðeins kærleikur. Hann er einnig heilagur og réttlátur,
sem ekki líður neitt ranglæti í sínu ríki. Guð er engin
meinleysis gufa, því að reiði Guðs opinberast af himni yfir
sérhverjum óguðleika og rangsleitni þeirra manna, sem
drepa niður sannleikanum með rangsleitni. Róm. 1., 18.
Látið því frelsast. I Jesú Kristi er líf og sáluhjálp, frelsun
frá allri synd. Sælir eru þeir, sem þvo skikkjur sínar, hvít-
fága þær í blóði lambsins. Þeir hvílast í sælum friði í fríð-
um faðmi Jesú, miklu fegri en sól.
Sælir eru þeir, sem þvo skikkjur sínar, til þess að þeir
geti fengið aðgang að lífsins tré og megi ganga um hliðin
inn í borgina. Uti gista hundarnir, töframennirnir, frillu-
lífismennirnir, manndrápararnir, skurðgoðadýrkendurnir
og hver sem elskar og iðkar lygi. Opinb. 22., 14.—15.
Blóð Jesú Krists Guðssonar, hreinsar frá allri synd.
Guði sé lof.
Kristján A. Stefánsson
frá Bolungarvík.
--------x---------
AFTURHVARF BANKASTJÓRANS
Trúboði nokkur, sem heimsótti öldruð og auðug hjón,
sagði, að þau ættu að vera Guði mjög þakklát fyrir, að
veita þeim öll þægindi í ellinni. Gamla konan fór þá að
gráta og sagði, að hún væri mjög þakklát og að hjarta
hennar ætlaði að bresta, af því að sonur hennar, ungur,
atkvæðamikill bankastjóri, væri ekki frelsaður. Hún hafði
beðið fyrir honum, síðan hann fæddist, en Guð hafði
enn ekki svarað bænum hennar. Trúboðinn hvatti þá til
þess, að þau þrjú skyldu biðja fyrir honum þegar í stað.
Þau krupu öll niður, og trúboðinn bað móðurina að biðja,
Hún bað mjög innilega, síðan maður hennar og trúboð-
inn seinast. Er þau stóðu á fætur, leit móðirin upp, bjart
var yfir svip hennar, og hún sagði, að hún hefði fullvissu
um, að bænum hennar hefði verið svarað. Eftir litla stund
var hringt til miðdegisverðar, og er þau voru að leggja
af stað inn í borðstofuna, kom ungi bankastjórinn inn og
sagði móður sinni, að rétt fyrir fáeinutn mínútum hefði
hann tekið á móti Kristi sem frelsara sínum niðri í bank-
anum.
Það var sameinuð bæn þeirra þriggja, sem fékk loka-
svarið ,
(Þýtt úr: „Eg hrópaði, hann svaraði.“)