Norðurljósið - 01.01.1965, Blaðsíða 62

Norðurljósið - 01.01.1965, Blaðsíða 62
62 N ORÐURLJ ÓSIÐ Skyldi einhver lesa þessar línur, sem beðið hefur skip- brot með svipuðum hætti og hann James, þá viti sá hinn sami, að Drottinn Jesús er fullnægur frelsari handa hon- um, ef hann v.ill snúa frá syndum sínum og gefur sig alger- lega Kristi til að lifa honum einum, þjóna honum, en ekki syndinni í nokkurri mynd. S. G. J. --------x-------— Molar frá borði Meistarans. (Greinir handa lœrisveinum Krists.) Hljóða stundin. Eftir Alfred P. Gibbs. 1. Mikilvægi hljóðrar stundar. Hver er sú lífsregla, sem trúað fólk ætti allt að temja sér ævilangt? Hún er sú: að eiga hljóða stund í einrúmi með Guði. Sú stund sé fyrst af öllu á morgnana og síðust af öllu á kvöldin, á hverjum degi. Ofarinn vegur bíður þín á hverjum nýjum degi. Aður en þú stígur fæti á hann, þá átt þú að taka þér tíma til að hlusta á, hvað himneskur fað.ir þinn hefir að segja þér í ritningunni, og einnig að tala við hann í bæn. Þú gerir aftur hið sama, þegar dagurinn er að enda, og þú ætlar að leggjast til hvíldar. Hví þurfum við slíka hljóða stund? Af því að við erum alveg háð Drottni, honum háð um vizku, leiðbeining, bless- un og tímanlegar nauðsynjar. Hinn trúaði verður andlega styrktur, þegar hann hefir slíka stund með Guði, og búinn undir að mæta erfiðleikum, freistingum og reynslustund- um á pílagrímsferð sinni. Jes. 40. 29.—31. Hver getur byrjað daginn vel, gengið vel yfir daginn og endað hann vel? Sá einn, sem gefur sér tíma til hljóðrar stundar með Drottni. Hvað á þessi stund að vera þér? Stund, sem þú ákveður að taka þér tíma til að hafa, stund, sem þú varðveitir vel og samvizkusamlega handa Guði. Ekkert á að koma í veg fyrir hana, því að glatist hún, getur ekkert annað bætt það tjón, sem hinn trúaði bíður við það. Satan, heimurinn og holdið sameinast um: að ýta henni burt úr dagskrá okkar með þessari afsökun: „Enginn tími afgangs." Hvað eigum við þá að gera? Taka okkur tíma til að framkvœma hana •og varðveita, ef Kristur á að telja vitnisburð okkar og skaplyndi nokkurs virði. Moody sagði: „Hafir þú ekki tíma til að biðja og rannsaka Orðið, hefir þú meira að gera en Guð ætlaði þér.“ Samma, einn af köppum Davíðs, nam staðar í spildunni miðri, er aðrir hörfuðu undan, náði henni og vann sigur á Filistum. Við skulum líka nema staðar, verja þessa hljóðu stund af alefli og láta eigi óvin- inn ræna henni frá okkur. 2 Sam. 23. 11., 12. Sá sorgarleikur hefði aldrei gerzt, að þúsundir manna, umhverfis okkur, biðu skipbrot og glötuðu vitnisburði sínum, ef Guð væri fyrstur í lífinu hjá öllu trúuðu fólki og „hljóða stundin“ heiðarlega varðveitt. Afleiðingar þess, að hljóða stundin var vanrækt, urðu þær, að fólkið varð kærulaust í framkomu sinni, afskiptalaust um ábyrgð sína og missti mótstöðukraftinn til að standa gegn freistingum og syndsamlegum girndum. Af því spratt svo óhamingjan, sem rændi gleði þess í Drottni og gerði það gagnslaust til þjónustu hans. Við erum öll að eðlisfari óstöðug og þurfum kraft, — óttafull og þörfnumst djörfungar, — fávís og þurfum vizku, — villugjarnt og þörfnumst leiðbeiningar, — synd- ug og þurfum endurnýjun. Þar, sem „hljóða stundin“ er, þar veitist okkur kraftur, djörfung, vizka, leiðbeining og endurnýjun. Við skulum segja með Habakúk: „Eg ætla að nema staðar á varðbergi mínu og ganga út á virkisvegginn og skyggnast um til þess að sjá, hvað hann talar við mig og hverju hann svarar umkvartan minni.“ Hab. 2. 1. Við skulum líka varðveita þessa „hljóðu stund“ og helga hana Drottni, hvað sem það kostar. 2. „Hljóða stundin" þart undirbúning. Aðalreglur þær, sem gilda fyrir hljóðu stundina, gilda jafnt kvölds og morgna, nema þær, sem alveg eiga við morguninn. I fyrsta lagi: Veldu henni þann tíma, sem er beztur, mismunandi eftir því, hvernig eru kringumstæður. Sjáðu um, að þú hafir nægan tíma til að klæða þig, nógan tíma til að borða og fara að heiman, svo að þú mætir á réttum tíma til vinnu eða í skólanum. Mundu eftir því, er þú kýst þér þennan tíma, að helga Drottni bezta hluta dagsins. í öðru lagi: Farðu nógu snemma á fætur, svo að þú hafir nægan tíma til að hafa hljóða stund. Það finnst ekki öllum auðvelt, eigi þeir að fara snemma á fætur. Til þess getur þurft sterka ákvörðun og sjálfsaga. Það munar miklu, hve auðveldara er að liggja í rúminu og hugsa um að fara á fætur heldur en henda sænginni af sér og fara á fœtur. Einn ástundunarsamur, trúaður maður var spurð- ur, hvort hann bæði Drottin að hjálpa sér að fara á fæt- ur og eiga hljóða stund á morgnana. „Þess þarf ekki, — ég fer á fætur í staðinn.“ Það, að fara snemma á fætur, er mjög háð því, hvenær háttað er á kvöldin. Biblían segir: „Það er til ónýtis fyrir yður, þér, sem snemma rísið og gangið seint til hvíldar.“ Sálm. 127. 2. Háttaðu á venjulegum háttatíma. Fótaferð á vissum tíma verður fljótt að vana. Hún veitir hinum trú- aða ríkulegt endurgjald, andlegar blessanir. Gott er að nota vekjaraklukku, ef með þarf. I þriðja lagi: Þvoðu þér og farðu í f'ótin þegar í stað. Þetta vekur þig til fulls. Þá verður þú ekki hálfsofandi, meðan hljóða stundin er. Þetta er fjarska mikilvægt. Þú þarft að vera vel fyrirkallaður, bæði andlega og líkam- lega, svo að þessari stund verði ekki rænt frá Guði og þér, af því að svefndrungi hamlar þér frá að beita hugan- um. 3. Sjólf hljóða stundin. Fyrst er sú ákvörðun, er trúaður maður verður sjálfur að taka, hvað hljóða stundin hans á að vera löng. Við getum hugsað okkur, að hún taki 15 mínútur. Hún gæti verið miklu lengri, en alls ekki styttri. Við hugsum okkur, að hún eigi að taka 15 mínútur. Sá tími er grundvöllur að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.